Morgunblaðið - 18.11.2000, Síða 80
- »80 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Með allt á hreinu - Óður til kvikmyndar
„Við erum búnir
að meika það“
Stuðmenn meikuðu það allrosalega er þeir
slógu í gegn með kvikmyndinni Með allt á
hreinu árið 1982. Nú er komin út plata til
heiðurs þessari mynd þar sem dægurlista-
menn samtímans takast á við lögin sem þar
er að fínna. Arnar Eggert Thoroddsen
settist niður með Valgeiri Guðjónssyni og
ræddi við hann um tilurð og sögu þessara
laga sem þjóðin öll virðist kunna utan að.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valgeir Guðjónsson heldur á gaffli lífsins.
/
ÞESSUM árum voru Stuð-
menn gangandi frjósemis-
búnt og duttu þama niður
á einhverja óskiljanlega
töfrauppskrift sem hittir alla íslend-
inga beint í hjartastað. Valgeir nefnir
í þessu sambandi að myndin haíi hins
vegar aldrei átt upp á pallborðið í út-
löndum. „Þjóðin hefur einhvem veg-
inn náð að skilja þessa mynd mjög vel
en hún er hins vegar algerlega óskilj-
anleg öðmm þjóðum. Það var stutt en
eftirminnileg gagnrýni sem birtist
um myndina í Los Angeles Times þar
sem hún var sýnd á einhverri kvik-
myndahátíð þar í borg. Dómurinn
hófst á þessum orðum: On top (enskt
heiti myndarinnar) is a fílm about a
bunch of Icelandic fraitcakes in apall-
ing clothes." (ísl. „Með allt á hreinu er
mynd um hóp af frónverskum flónum
í forljótum fötum). Þetta var svona
vinsamlegasta setning dómsins."
A plötunni kennir margra grasa og
listamennimir taka marga og mis-
munandi póla í Stuðmannahæðir. T.d.
breyta Borgardætur „Út í eyjum“ í
brjálað djassstef á meðan Land og
synir í félagi við Stefán Karl Stefáns-
son leikara, era trúir upprananum í
útgáfu þeirra af „Sigurjón dign“.
Langi Seli og Skuggarnir setja „ís-
lenskir kai'lmenn" í viðeigandi
, ,gockabilly“-búning en Stuðmenn
sjálfir setja lagið ,Að vera í sam-
bandi“ í dansvænan búning í sam-
vinnu við hússveitina Housebuilders.
„Tónlistin var að miklum hluta
samin á þremur dögum og kom nú að
stóram hluta úr mínum pækli,“ segir
Valgeir. „Hún var samin í rútuferð
frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með
Þursaflokknum. Ég var nýkominn úr
námi og var búinn að vera í ákveðnu
tónlistarlegu svelti. Það brast bara
einhver flóðgátt.“
Valgeir rifjar upp skrýtnar og stór-
skemmtilegar sögur á bakvið lögin í
tilefni útgáfunnar.
„Ástardúett"
„Við tókum upp atriðið sem hýsir
lagið í vöralager Sambandsfyrirtækj-
anna en þar er nú Ikea. Við fengum
þama eina dagsstund til afnota til að
taka upp þetta atriði. Þá var einmitt
þessi ágæta sena; lykilsena. Flest
samtöl í myndinni voru spunnin upp á
staðnum, t.d. setningin með rútuna
(„Það verður engin helvítis rúta; það
verður bara langferðabíll") hún var
ekkert undirbúin.
Þetta lag var samið af mér og Agli
og við vorum fljótir að því. Ég henti
fram setningunni: „Ég er dáinn úr
ást“ og Egill botnaði: „Þó hjartað
dæli blóði“.“
„Siguijón digri“
„Þetta lag var ábyggilega gert í
þessari ferð líka. Það var alltaf mjög
gaman að spila þetta lag, mikil fart í
þessu lagi. Þetta er gömul saga sem
henti hann Magnús Einarsson sem
starfar á Rás 2, gamall og góður vinur
minn. Hann var í hljómsveit sem var
rekinn úr skónum á Homafírði af
Ragnari í Sindrabæ sem var svona
frægur karakter, stór og mikill.“
„Islenskir karlmenn“
„Samið í rútuferðinni. Var samið að
gefnu tilefni, gert til að þjóna þessu
karla/kvennamáli í myndinni. Á móti
kom þá Giýlulagið „Ekkert mál“.
Þegar við komum loks í bæinn úr
rátuferðinni gerðum við framstæðar
upptökur í stúdíóinu Grettisgati sem
við tókum upp á kassettu og sendum
Jakobi. Þessi kassetta hefur aldrei
fundist aftur en þama era frumgerðir
laganna sem komu út úr rátuferðinni
- eins konar órafmagnaðar útgáfur.
Ætli sé ekki búið að endurvinna þess-
ar kassettur einhvers staðar úti í
Kaliforníu, búið að búa til úr þeim
kókflöskur.*1
„Haustið ’75“
„Það er þessi fallega sena (er
Hafþór trommari hittir gamla kær-
ustu. Innsk. mbl.), ejn af þessum fínu
senum í myndinni. Ég man að viðlag-
ið samdi ég í Noregi þegar ég var þar
í námi. Leikur Ásgeirs í þessu atriði
er á heimsmælikvarða. Eins og þegar
hann missir Ópalpakkann, það hefði
enginn lærður leikari misst pakkann
betur en Ásgeir.“
„Æði“
„Við voram með heilmiklar bolla-
leggingar í kringum þetta lag (lagið
kemur fyrir er Stuðmenn era að spila
í heljarinnar ham í einhverjum
ónefndum bæ úti á landi en er hins
vegar hvergi fáanlegt á plasti. Innsk.
blm.) og voram með fleiri hugmyndir
í kringum þessi líkamsmeiðsl sem
enduðu svo bara í fatla. Ein hug-
myndin var sú að eftir að Egill væri
búinn hanga í ijáfrinu í einhvern tíma
myndi hann falla niður og hendumar
myndu lengjast; hann myndi svo
draga þær á eftir sér. Önnur hug-
mynd var sú að hann myndi tvista af
sér fætuma og hefði fengið ítalska
gervifætur."
„Reykingar"
„Þetta er lag sem ég og Bjólan
sömdum saman. Við gerðum saman
plötuna Jolli og Kóla sem að mér þyk-
ir alltaf mjög vænt um. Afar
skemmtilegt að hlusta á hana í dag,
eldist ágætlega. Við tókum hana upp
á dauðum tíma í Hljóðrita og ef ég
man rétt kemur „Reykingar“ úr þeim
bálki. Ég dró það svo fram fyrir þetta
rátuatriði í myndinni. Vildum hafa
eitt svona afslappað „on the road“ lag.
Þar kemur þessi kafli sem ég held að
sé eini staðurinn þar sem ég syng á
þessari plötu. „Hver er tilgangurinn
með þessu jarðlífí" kaflinn. Við sett-
um hann aftan við í stúdíóinu og ég
man að ég bullaði þetta bara upp úr
mér og hafði þá til hliðsjónar einhver
lög sem Magnús og Jóhann höfðu
samið en þeir vora dáh'tið kosmískir í
textum hér í eina tíð.“
Ég ber undir Valgeir eina línu sem
er að fínna í laginu: „Þú varst sjálfur f
eina tíð prakka - ritvél hefur takka.“
og hann hlær dátt. „Þetta er náttúr-
lega alveg hrein snilld." segir hann og
brosir.
„Sláígegn"
„Eins og ,Ástardúett“ þá reyndum
við að hafa þetta svona hæfilega halló.
Er svona tilvísun aftur í tímann, þar
sem hallærislegheit Stuðmanna era
ítrekuð með gamaldags stíl. Þetta er
svona hálfgert „fifties“ lag og var
samið í rátuferðinni góðu er við vor-
um að keyra yfir Mýrdalssand. Það
var skemmtilegt atriði í myndinni er
við fóram út í rássneskt skemmti-
ferðaskip. Við fóram út í þetta skip af
því að við sáum það úti á höfninni.
Dæmigert fyrir myndina og það var
heilmikið mál að fá að fara út í skipið.
Kvikmyndatökumaðurinn okkar, sem
er Breti, töfraði fram pund og keypti
þar eina rássneska freyðivín sem við
settum í okkur fyrir listina.“
„Franskar (sósa og salat)“
„Vegasjoppulagið. Það er svona
hægt Bo Diddley bít í þessu. Ég man
þegar ég var í Noregi þá hlustaði ég
mikið á hljómsveit sem hefur alltaf
verið í miklum metum hjá mér síðan,
heitir Little Feat. Það er svolítill
Little Feat hugsanagangur í þessu
lagi. Lag sem bæði hefui- tregðu og er
ekki hratt í eðh sínu en hefur samt
svona bít sem knýr það áfram. Þannig
að það er hvorki hægt né hratt. Mér
hefíir alltaf þótt gaman að lögum sem
búa yfir svona tempó-togstreitu."
„Að vera í sarnbandi"
„Við Jakob sömdum þetta lag man
ég og það var sem sagt fyrir þessa
senu sem er nú alltaf dáhtið fyndin (í
upphafi myndar er Stuðmenn spila
fyrir tómum sal. Innsk. blm.). Stund-
um finnst mér að það hefði mátt
klippa hana enn þá skemmtilegar til
og gera meira úr þessum dansi. Við
tókum þetta einu sinni og urðum ör-
þreyttir eftir þetta hopp. Þetta er svo
gríðarlega krefjandi iðja að dansa
þennan Stuðmannadans. Það væri
hægt að gera úr þessu heilt lík-
amsræktarkerfi og selja dýram dómi
út um allan heim. Þetta klárar allan
eðhlegan andardrátt á örfáum sek-
úndum. Fyrir utan hvað þetta er mik-
il innri fegurð, það er svo mikil tján-
ing sem hægt er að setja í þessi spor.“
„Draumur okkar beggja“
„Ég og Jakob gerðum tvær smá-
skífur í gamla daga, Ein þeirra var
með laginu „Gjugg í borg“ og
„Draumur okkar beggja" var hinum
megin (önnur útgáfa Stuðmanna,
1974. Innsk. blm.). Bæði þau lög
samdi ég í Hamrahhðarskólanum.
Bæði lögin komu alsköpuð í fyrsta
rennsh, það er ekki oft sem manni
auðnast slík vinnubrögð; segir nú
kannski meira um lögin en snilhgáf-
una. Lagið í myndinni er svona skop-
leg sýn á þessa rómantísku deild sem
var í gangi upp úr áttatíu."
„Ekkert mál“
„Mörg laganna í þessari mynd vora
samin inn í ákveðnaðar senur og gerð
til að þjóna framgangi myndarinnar
eins og t.d. „Franskar (sósa og sal-
at)“, „Haustið ’75“, „Slá í gegn“ og
„íslenskir karlmenn". Þetta Grýlu/
Gæralag var hugsað sem mótvægi við
síðastnefnda lagið.“
„tít í eyjum“
„Þetta er svona tralala-lag sem ég
hef nú aldrei verið neitt of hrifin af.
Það gerir sig þó alltaf jafnvel þegar
það er leikið fyrir dansi. Þetta er eitt
af þeim lögum sem við sömdum sam-
an - við þrír; ég, Jakob og Egill. Við
sendum það inn í samkeppnina um
þjóðhátíðarlag þegar við fóram til
Eyja að gera þessa mynd og það varð
úr heilmikið drama. Okkur var sagt
að þetta hefði borist of seint en það
var nú ekki. Það var vitað að þetta
hafði borist innan marka skilafrests
þannig að þama var einhver póhtík í
gangi.“.
Morgunblaðið/Porkell
Addi Fannar
Morgunblaðið/I'orkell
K.K.
Morgunblaðið/Golli
Guðni Finnsson
Hver mælir fyrir sveitunum?
ADDI Fannar er gítarleikari í
Skítamóral en sveitin sú tók sér árs
frí fyrir stuttu eins og kunnugt er.
Skítamórall rennir sér í gegnum
stuðlagið „Æði“.
Af hveiju þetta lag: Okkur
fannst það skemmtilegt að þetta lag
hefur aldrei komið út á plötu og er
ekki nema hálft í myndinni. Einnig
fannst okkur skemmtilegt að þegar
Stuðmenn era að spila þetta lag era
þeir á dansleik í Selfossbíói en
kjaminn í hljómsveitinni er þaðan.
Uppáhaldsstuðmaður: ,Iakob.
Uppáhaldssetning úr myndinni:
„Við ætluðum að fara í göngutúr
upp á Blátind."
KK og Maggi taka blámalagið
súra „Reykingar" og setja í við-
hafnarbúning. KK verðui' fyrir
svöram.
Af hverju þetta lag: Þetta lag
valdi okkur.
Uppáhaldssf uðmaður: Allir.
Uppáhaldssetning úr myndinni:
„Það má vera eitthvað sko, sem er
dálítið væld sko, en samt þannig að
snyrtimennskan sé enn þá í fyrir-
rámi sko.“
Rokksveitin Ensimi tekur lagið
„Draumur okkar beggja“ og setur
það í ansi athyglisverðan búning
með góðri aðstoð frá sjálfum Gylfa
Ægissyni. Guðni Finnsson er
bassaleikaii sveitarinnar og út-
skýrir ástæðumar fyrir þessu.
Af liverju þetta lag: Við völdum
það nú eiginlega ekkert sjálfir. Það
vai' leitað til okkar um að taka þetta
lag sennilega vegna þess að á plöt-
unni er verið að leika sér með sam-
bland lifandi tónlistar og forritaðr-
ar.
Uppáhaldsstuðmaður: Eggert
Þorleifsson.
Uppáhaldssetning úr myndinni:
„Ef ég sé með hattinn fer ég öragg-
legaístuðsko."