Skírnir - 02.01.1848, Blaðsíða 13
ab hann gæti eigi tekib á móti kosningunni. Hoi-
setum og flokksmönnum þeirra í Sljesvík þótti illt
ab missa hans úr þinginu, og tóku sig því saman
um, ab safna fje handa honum, svo aÖ hann gæti
sagt af sjer embætti sínu, en heföi þó samt sem
áöur nóg til viburværis; ætluöust þeir til, aö þessi
samskotseyrirskyldi veröa svo mikill, aö næmi flmmtíu
þúsundum dala. í nóvembermánuÖi sagði Beseler
af sjer embætti sínu, svo hann gæti komizt í þingiö.
Enginn má enn fyrir sjá, hversu Ijúka muni ágrein-
ingi þessum á milli Dana og Holseta. Flestir þjóö-
verjar munu draga taum Holseta; á þjóÖþingi Prússa
var t. a. m. í vor á kveöiö, aí) biöja konung þar,
aö styrkja mál þeirra; en svo lítur út, sem Englar
og Frakkar sjeu Döntim meömæltir.
1 vetur vakti danskur maöur máls á því, aö
hjólskipagöngur kæmust á í milli Danmerkur og Skot-
lands og Færeyja og íslands. þessi maöur heitir
Krieger (Kríger), og er flokksforingi í sjóliöi Dana.
Hann hefur stungiÖ upp á, aö byrjaö væri á því,
aö láta hjólskip, sem kallaö er Hekla, og Kristján
konungur hefur nefnt eptir eldljallinu á íslandi, fara
þrjár feröir í sumar fram og aptur, og hafa til þess
miösumarsmánuöina júní, júlí og ágúst. Ætlast
Krieger til að skipiö leggi af staö hje&an eptir miö-
degi fyrsta daginn í hverjum af þessum þrem mán-
uöum, og gjörir hann svo ráö fyrir, aö þaö mundi
á fjóröa degi koma um miödegisskeiö til Aberdeen
(Ebberdín) á Skotlandi; þar ætti þaö a& vera einn
sólarhring og byrgja sig aö kolum. SíÖan gjörir
Krieger ráö fyrir, aö skipiö mundi koma til þórs-
hafnar á Færeyjum aö morgni hinS sjöunda dags;