Skírnir - 02.01.1848, Blaðsíða 101
103
gekk og vífea í löndum Tyrkjasoldáns í Austurálf-
unni, og var hún þar öllu mannskœbari, en í Garíia-
ríki, og var þar þangaö til seint í haust. f>aö er
sibur þcirra, sem eru tyrkjatrúar, aö ganga pilagríms-
göngu til MeM-a, þar sem Muhamed spámaöur þeirra
er fœddur, og kalla þeir þann staö heilagan. Snemma
í desembermánuöi í fvrra vetur, var svo mikill fjöldi
vallara saman kominn í grennd viö Mekka, aö menn
segja, aö þeir hafi veriö sextíu þúsundir aö tölu.
Jaeir ætluöu aö silja þar um kyrrt í þrjá daga, og
gjöra sjer til góöa; en nú uröu þeir svo skyndilega
veikir af ”kólera”-sýkinni, aö á fimm dögum dó
fullur þriöjungur þeirra, eöa hjer um bil tuttugu
þúsundir.
Ein af undirborgum Miklagarös heitir Pera.
þrettánda dag septembermánaöar í haust kom þar
eldur upp í veitingahúsi nokkuru; þaö varumnón;
vindur var á hvass á austan, og sló eldinum fljótt í
hús þau, er þar voru í grennd viö. Einni stundu
eptir miöaptan varö eldurinn slökktur, og voru þá
brnnnin tvö hundruö húsa.
XIV.
Frá Grik kjum.
þaö eru eigi nema tuttugu ár síöan, aÖ Grikkir
fóru aö eiga meö sig sjálfir aptur; haföi áöur veriö
fariö meö þá eins og ánauöuga þræla í margar aldir;
er því eigi aö undra, þótt margt sje ábótavant hjá
þeim enn þá; en á hinn bóginn láta fyrirmenn þeirra
sjer mjög annt um aö koma góÖri skipun á í land-
inu, og afla þjóöinni meiri menntun, en hún hefur