Skírnir - 01.01.1857, Síða 118
120
FRÉTTIR.
Viðbætir.
í mörgu; en þab er samníngur milli Engla og Frakka um fiskveibar
vi& Nýfundnaland. Nýfundnaland er em af nýlendum Engla i Vest-
urheimi. þeir febgar Jón og Sebastían Cabot fundu ey þessa 1497,
þá er þeir fóru ab leita Vesturheims „eptir tilvísun Íslendínga”1,
sem vííifrægt er orbib. Síban tóku ýmsir ab byggja landib, bæbi
Spánverjar, Portúgalsmenn, en þó einkum Frakkar og Englar.
Voru langar deilur milli Frakka og Engla um þab, hvorir þeirra
ætti landib og fiskveibarnar, því þar eru fiskveibar abrar beztar en
vib ísland, sem kunnugt er. í fribarsamningnum í Trekt 1713
fengu Englar yfirráb yfir landinu, en Frakkar höfbu enn næstum
fullkominn einkarétt til veibanna. Gjörníngur þessi var ítrekabur
í Hubertsborgarfribnum 1763; en í fríbarsamníngnum í Farsæluborg
1783 héldu Frakkar eigi eptir einkarétti til fiskveibanna nema
strandlengis frá Jónshöfba (Cape of St. John) á austurströndinni
til Rayhöfba á vesturströndinni, þab er fullur helmíngur strand-
lengdarinnar. þessi gjörníngur var stabfestur í fribarsamníngnum í
París 1814. Landsmenn hafa jafnan unab þessu illa og hafa bekkzt
til vib Frakka, vildu því Frakkar fá endurnýjaban samnínginn. í
vetur fengu þeir samib svo vib Engla, ab jieir létu Engla fá 100
mílur enskar milli Rayhöfba og Ymbruhöfba (Cape of Humber) til
fiskveiba, þó voru undantekin 5 fiskiver meb 3 mílna landi hver;
en Frakkar fengu aptur í stabinn samveibi vib Engla á 80 mílum
vegar fyrir Labrador ströndum. En Englar gjörbu þann skildaga
á, ab þíngib á Nýfundnalandi féllist á samnínginn, ab öbrum kosti
skyldi hann ógildur. þíngmenn ræddu nú samnínginn, og voru
honum mótfallnir í alla stabi; tóku þeir þab fram, ab þeim yrbi
ómögulegt ab keppa vib Frakka, ef þeir fengi ab þurka allan fisk
sinn á landi, fyrir þá sök, ab Frakka stjóm gæfi fiskiskútum sín-
um vib Nýfundnaland 50 franka ab verblaunum fyrir hvern skip-
verja, ef fiskurinn væri þar þurkabur á landi, en þó ekki nema
30 franka, ef hann væri fiuttur óþurkabur til Frakklands. Hefir
því ekki orbib neitt úr samníngi þessum.
A. Ó.
•) Selden: Mare Clausum; Bacon’s History of Henry vji.