Skírnir - 01.01.1865, Síða 55
Italia.
FRJETTIR.
55
stjettinni, er hverfa aS málstaS þjóSarinnar og stySja rá8 stjórnar-
innar henni til framfara og þrifnaSar. Einn kardínála (1 kardí-
nála ráSi páfans), sá er Andrea heitir, valinkunnur og menntaSur
maSur, fór í sumar til Napólí og tók j>átt í ýmsum nytjaráSum í
borginni. Hann gekkst sjerílagi fyrir um alþýSuskólana. I haust
settist konungsefnið a8 í borginni me<5 liirS sína, og var kardínál-
inn í tölu þcirra manna, er sóttu á fund prinzins og höfbu tal af
honum. {>etta varS páfanum og bans vinum a? miklu hneyxli,
sem von var, jþví prinzinn er í banni páfans sem fa<5ir hans.
Páfinn svipti kardínálann launum sínum, en Viktor Emanúel hefir
fengiÖ honum höll í Napólíborg til íbúÖar og sett hann yfir öl-
musugiptir úr konungssjóÖi. BæÖi höfuÖborgin á Púli, Napólí, og
aÖrar fleiri hafa tekiö mikil stakkaskipti síöan Búrboningar voru
reknir frá völdum. Strætin hafa veriö hreinsuö og prýÖkuÖ, hús
til trúÖleika, spítala, skóla og fl. hafa veriö reist á öllum stöÖum,
en verzlan, starfsemi og j>rifuaÖur bæjarbúa befir aukizt, svo aö
furöu gegnir, enda kvaÖ íbúatalan hafa fjölgaÖ um 40 þúsundir.
þaÖ hefir sagt frakkneskur maÖur, aÖ þaÖ eina, er mætti vinna
ránskap og illvirkjum eÖur öllum óþegnskap aÖ fullu á SuÖur-
ítalíu, væri skólar og uppfræÖing alþýÖunnar. I höfuÖborginni
hefir stjórn Viktors konungs fjölgaÖ barnaskólum um70; í Salerno-
fylki eru nú 496 almúgaskólar, en 1862 voru þeir eigi fleiri en
272. þar aö auk hefir stjórnin komiö upp mörgum mennta og
fræÖiskólum fyrir menn af iönaöar og verzlunarstjettinni. þaö
hefir einkanlega veriÖ gjört til atvinnubóta á landsbyggÖ SuÖur-
ítalíu, aÖ þurka mýrar og flóa, og hefir viÖ þaö fengizt afarmikiÖ
akurlendi, og efla baÖmullaryrkju. Eptirtekjan eptir hana varÖ
áriö sem leiÖ hjerumbil 8 Va mill. punda (1862 tæplega 1 mill.).
MeÖ fleirum annmörkum fer og hjátrú og hjegiljuskapur alþýö-
unnar rjenaudi. Bæjarstjórnin í Napólí synjaÖi fyrir skömmu fjár
til prócessíugjörÖar til líkneskis Krists í Carmino (nálægt borginni),
og komizt hefir í umræÖu, aÖ gjöra enda á því jartegnakukli, er
árlega er framiÖ í. höfuÖborginní á hátíÖ ens helga Janúaríus.
En veriÖ getur aÖ menn spari nokkurn tíma þenna dýrÖling
og goÖ bæjarmanna, því hann hefir vikizt hiö þegnlegasta viö
allri nýbreytninni og látiÖ blóÖ sitt renna vakurlega í hvert skipti