Skírnir - 01.01.1871, Blaðsíða 60
60
ÓFKIÐURINN.
J>á beiSist eg nú ab mega selja Y?ar Hátign sverb mitt í
hendur“. Konungur var í Donchery, þorpi er svo heitir, fyrir
vestan Sedan, er hann fjekk hrjef keisarans (um kveldib einni
stund eptir mibaptan). þar var þá og krónprinsinn, sonur hans,
þeir Moltke og Bismarck, og öll fyrirliöasveit þeirra konungs.
Konungur fól Moltke á hendur a3 semja viS Wimpffen um upp-
gjöfina, en kvaddi Bismarck til ab vera viS staddan, og var þar
þegar fullráSiS, hverjum kostum skyldi fram haldiS. Eptir þaS
fór konungur til herbúSa sinna nokkru sunnar, viS þorp, er
Yendresse heitir. Wimpffen kom ura kveldiS til Donchery, og
tókust samningarnir þegar meS honum og Moltke. Kostirnir
voru þeir, aS allur her Frakka skyldi leggja vopnin af sjer og
ganga Prússakonungi á vald, og hin sama uppgjöf skyldi varSa
kastalann og allan þann vopnafla, er þar var, ásamt setuliSinu.
Wimpffen baS frests til umhugsunar til þess eptir miSnætti, og
tjáSi þó undan engu aS mælast. Moltke sagSi, aS skothríSin
mundi upp aptur tekin, ef lengri dráttur yrSi á samningunum.
Wimpffen varS aS ganga aS kostunum, sem þeir voru settir, og
skyldi allur her Frakka færSur til varShalda á þýzkalandi. Undan
skjldir voru hershöfSingjar og fyrirliSar, er máttu halda vopnum
sínum og fara þangaS, er þeir kysu, ef þeir skuldbyndu sig til
aS hlutast eigi framar til þessa stríSs, og forSast öll ráS eSa at-
gjörSir, sem yrSu þýzkalandi í óhag. Sem viS mátti búast, kusu
allir heldur herleiSinguna en heimförina. Hjer var eigi aS eins
mikill sigur unninn, en hinn sjaldgætasti — og án efa utan
dæma, er 83 þúsundir (þar á meSal 4000 fyrirliSa) gengu meS
vopnum fjandmönnum sínum á hönd eptir orrustu á vígvelli. í
orrustunum frá 30.' ágúst höfSu þjó&verjar tekiS höndum allt aS
20 þúsundum (eSa meir), en 14 þúsundir höfSu særzt eSa falliS.
Hjerumbil 3000 höfSu náS aS forSa sjer til Belgíu, eSa aSrar
leiSir undan. I herfangi þjóSverja voru 400 fallbyssur, 70 kúlu-
þeysar, 150 kastalafallbyssur," 10,000 hestar, auk vagna og vista
og allskonar fanga, þeirra er til herútgjörSar heyra. — Morgun-
inn eptir kom sá hersforingi (Reille), er fyrr er nefndur, meS
þau boS til Bismarcks frá keisaranum, aS hann vildi hafa tal af
honum og væri hann á ferSinni til hans. Bismarck reiS þegar í