Skírnir - 01.01.1871, Blaðsíða 180
180
SUÐURAMERÍKA.
sonur Urquiza. Síðar heyrðist, að þessi þjóðhetja hefði látið gera sig að
landstjóra í Entrerios (eða, sem oss minnir helzt, að forstjóra argen-
tínska sambandsins), og er þá ekki ólíkt, að hann hafi metorðanna
vegna borizt þetta fyrir. — I vor hefir hin „gula sýkin” geysað ógur-
lega í borginni Buenos Ayres, og er seinast frjettist, voru þar Tátnir
9000 manna, en veikt fólk hátt á áttunda þúsund.
ASÍ A.
Kina.
I fyrra sumar gerði bæjarlýður aðsúg að frakkneskum kristni-
boðum og fleiri kristnum mönnum í borg þeirri, er Tientsin heitir,
og veitti þeim bana (30 að tölu eða fleiri). Lá þá víðar við, að
griðum kristinna manna yði misþyrmt, en bæði Erakkar og Englend-
ingar ljetu ganga hart að og hótuðu atförum, ef bætur kæmu eigi
þegar fyrir og þeim yrði eigi strax hegnt, er hlut áttu að máli.
þetta fjekkst reyndar, en með tregðu, því sumir heldri manna, eða
Mandarínar, voru við illræðið riðnir. það þykjast kristnir menn, er
hafa bólfestu í hafnaborgum Kínverja, mega skynja á mörgu, að Kín-
verjar vili fara að færa sig upp á skaptið móti Evrópumönnum og
fá þeim kostum af sjer hrundið er þeir urðu að ganga að eptir stríðið
seinasta við Frakka og Englendinga. þeir kváðu og hafa lagt sig
mjög eptir hermennt og hervjelum Evrópumanna, og tala svo' um, að
þeir muni bráðum geta staðið í þeim, ef til kæmi. Frekari vottur
um þetta, eru þau skeyti, sem nú eru komin til sendiboða Evrópu-
ríkja frá stjórn Kínakeisara, og eru þess efnis, að Evrópumönnum
skuli eigi látið hlýða að halda skóla fyrir ungar stúlkur í kínverskri
landeign, eður að forboða kennslu í trúarfræði Confucíusar þar sem
þeir eiga byggðir á Kínverjalandi. í annan stað segist stjórnin
banna kvennfólki að hlýða messugjörð Evrópumanna, en ætla þeim
kristniboðum hegningu, sem þarlendum mönnum, er boða kristna trú
á öðrum stöðum, en þar sem samningarnir hafa veitt Evrópumönnum
vistarleyfi í hafnaborgunum. Enn fremur kveðst hún muni færast
undan bótagjaldi framvegis, þó þarlendir menn vinni á kristnum mönn-
um. Hverju þeim verður — eða hefir verið svarað, vitum vjer ekki,
en það virðist, sem Kínverjar hafi heyrt af því sagt, hvernig sumir
hafa fengið hlut sinn ijettan við það að beiðast brigða á eða segja
upp þeim samningum, er þeir hlutu að ganga að nauðugir.