Skírnir - 01.01.1871, Blaðsíða 115
ÓFRIÐORINN.
115
dýra- og plöntunargarSi, er Jardin des Plantes heitir. þann 18.
janúar var tala þeirra, er bana höfSn fengiS af skotunum 86, og
var hjerumbil helmingurinn börn og konur, og örkumsl eSa meiðsl
höf?u fengið 215. J>ann 19. ljet Trochu herinn freista útrásar,
og rann liS Frakka út vestur úr borginni í Jiremur höfuSfylk-
ingum. Fyrir einni var Yinoy (í vinstra arm), annari Bellemare
hershöfSingi (í mið), og hinni þriðju Ducrot (í hægra arm), en
Trochu fylgdi liðinu á leið og skipaði til um áklaupin. J>að er
sagt, að hjer hafi enn runnið 100,000 fram til að reyna sig við
þjóðverja. Framan af deginum varð Frökkum ágengt á flestum
stöðum , og sóttu Jpeir vígi hinna með ákafa og harðfengi. Du-
crot átti örðugustu leiðina fram að.sækja, eða þar fram um
grenndarþorpin, er Prússar höfðu gert hvert hús að vígi og ljetu
skotin ríða mót honum sem ákafast. Fyrir því náði hann eigi
þeim stöðvum, er hann skyldi taka sjer til aðalsóknar, fyrr en
undir hádegi. J>að fór.hjer sem víðar, að J>jóðverjar biðu þess,
að Frökkum tók nokkuð að lata, Ijetu þá hafa fullt í fangi
framan af degi, en gejmdu sjer hörðustu skorpurnar og atreið-
irnar til þess eptir nónbilið. J>á höfðu þeir þenna dag saman
ekið kynstrum af stórskeytum á einum stað gegnt vinstri fylk-
ingararmi Frakka, en dregið ógrynni saman handvopnaliðs, er
aptar stóð, og skyldi þá fylgja eptir, er undan gengi. Nú laust
þeirri feikna hríð á, er Frakkar fengu eigi staðizt, en er vinstri
armurinn svignaði fyrir, tók liðið að hopa á öðrum stöðum. Um
kveldið drógust Frakkar inn aptur að borginni, og var Trochu
og öðrum foringjum þá þungt í skapi, því þeir vissu, að þetta
mundi verða en síðasta tilraun af hálfu borgarhersins. J>að er
sagt, að Trochu mundi hafa látið freista á ný daginn eptir, eða
látið þreyta lengur bardagann, ef hatin hefði eigi fengið að vita
þann dag, hvernig farið hafði fyrir Chancy og Leiruhernum. Mann-
tjón varð mikið í hvorratveggju liði, en miklu meira hjá Frökkum
(nokkrir segja 6000 með þeim er handteknir urðu). Eptir þessar
ófarir kom mesti óhugur á borgarbúa, og óeirðaflokkurinn gerði
enn róstur af nýju, þó skjótt tækist.þá að bæla þær niður.
Daginn eptir sagði Trochu af sjer aðalstjórn hersins og Leflð
ráðherra hermálum, og tók þá Vinoy við herstjórninni. J>ó hjelt
8*