Skírnir - 01.01.1888, Side 4
6
EVRÓPA ÁRIÐ 1887.
haft réttara fyrir mér en mótstöðumenn mínir. Jeg ætla ekki
að fara í stríð við Frakkland nema jeg verði tilneyddur, en
jeg get ekki gægst í spilin hjá forsjóninni og séð það.
A Frakklandi er þannig ástatt að jeg segi: Vér kom-
umst í stríð við Frakkland. Hvort það verður eptir 10
daga eða 10 ár, veit jeg ekki. það er komið undir hversu
lengi stjórn sú, sem nú er, stendur þar við stýrið. Jeg get því
ekki lofað friði. það væri markleysa. Astæðan til þessa frum-
varps, er hættan sem vofir yfir frá Frökkum. þeim voða verð-
um vér að fresta og hamla. f>ví Frakkar byrja stríðið
undir eins og þeir halda að þeir geti unniðoss.
f>að getur orðið með tvennu móti, með sambandi við aðra eða
með sterkari her. Ef þeir halda að þeir hafi fleiri hermenn, betri
byssur eða betra púður, þá segja þeir oss strax stríð á hendur.
Frakkland er auðugt og menntað land; vér megum ekki gera
oflítið úr Frökkum. Hver á að bera ábyrgðina ef vér bíðum
ósigur? Mig langar til að stinga uppá, að þeir þingmenn,
sem skaða ættjörð sína (fella frumvarpið) verði dregnir fyrir
lög og dóm. f>að er þó ekki ómögulegt, að Frakkland sigri
og þá fara þeir eins með oss og 1807. f>eir taka af oss
hvern skilding sem til er i landinu, Elsass-Lothringen og Rin
og reisa við konungsríkið Hannover. Ef Frakkland neyðir oss
í stríð og vér komumst i annað sinn til Parisar, þá munum
vér ekki blífa þeim. Vér munum þá sjá svo um að oss verði
ekki þaðan hætta búin á næsta mannsaldri. Friðurinn 1871
verður barnaleikur í samanburði við frið 1890. f>að getur líka
verið aðFrakkastjórn segiossstríð á hendur til að komasthjá innan-
landsóeirðum og styrkja sjálfa sig. Napóleon brúkaðistríð til þess.
f>ví skyldi Boulanger ekki fara eins að þegar hann verður höfuð
stjórnarinnar? Vér komum með frumvarpið núna af því vér viljum
eiga betri landvarnir að vori enn vér höfum átt að undanförnu.
Timinn er stuttur og dýrmætur». Bismarck sagði enn fremur,
að þjóðverjar mundu ekki hlutast til i Búlgaríu, þvi þeim væri
hún alveg óviðkomandi. Austurríki væru þeir ekki skyldir að
hjálpa ef það stofnaði sér í voða útaf Búlgaríu, nema það
kæmist í verulegar kröggur. Hann ætlaði sér ekki að láta