Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 8
10
EVRÓPA ÁRIÐ 1887.
Elsass-Lothringen upp á móti stjórninni og fengið þá til að
strjúka úr landi. Maðurinn sat nú í varðhaldi í Metz og bréfa-
skipti og vafningar fóru milli stjórnanna. Frakkar sögðu, að hann
hefði verið tekinn höndum Frakklands megin við landamærin,
en fóru stillilega i málið, þó ýms blöð léti ófriðlega. þá fékk
sendiherra Frakka í Berlín bréf frá Bismarck 28. april, sem
var á þá leið, að manninum mundi sleppt næsta dag, þó að sekt
hans væri sönnuð með bréfum og öðrum skýrteinum, vegna þess
að þýzkur embættismaður hefði beðið hann viðtals og gengið
á grið sin. Frakkar fögnuðu Schnábele vel og söfnuðu heið-
ursgjöfum handa honum með almennum samskotum. Hann
fékk annað embætti fjær landamærunum.
Hinn 3. dag maím. átti að ieika í París, Lohengrin, tón-
leik eptir hið ágæta þýzka tónleikaskáld, Wagner. Parisar-
skrillinn þyrptist það kvöld að leikhúsinu með ópi og óhljóð-
um. Stjórnin varð að skipa forstöðumanni leiksins að hætta
þessu hættuspiii. þetta sýnir hið ramma hatur Frakka til alls
sem þýzkt er. þjóðverjar aptur handsama opt menn á þýzka-
landi, sem þeir segja, að sé í njósnarerindum fyrir Frakka.
Fjórir franskir menn, búsettir í Elsass-Lothringen, voru dæmdir
í langa fangelsisvist 18. júní og var dómurinn uppkveðinn af
ríkisréttinum í Leipzig. þeim var gefið að sök, að þeir hefðu
verið í hinu franska þjóðvinafélagi (La Ligue des Patriotes),
sem ynni að því, að rífa Elsass-Lothringen undan þýzkalandi
og hefna ósigranna 1870—71 á þjóðverjum. þjóðvinafélagið hélt
nú fjölmennan fund í París 24. júní og mátti segja, að þar
voru þjóðverjar vegnir með orðum. Sendiherra Frakka leitaði
mönnunum vægðar, en við það var ekki komandi í Berlin.
Frönsku blöðin lofuðu nú, að Frakkar skyldi sjá svo um, að
þjóðverjum yrði illa vært að búa eða dvelja á Frakklandi
eptirleiðis, og var í orði að leggja nefskatt á útlendinga, en
ekki varð af því. A landamærunum gekk ekki á öðru en si-
feldum ertingum af beggja hálfu. Unglingspiltur, sonur
Schnábele, festi fána upp í þýzku tré. þjóðverjar tóku hann
fastan, en slepptu honum fljótt aptur. Seint í september kom
verri erting. þýzkur umsjónarmaður í skógi við landamærin,