Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 19
EVRÓPA ÁRIB 1887.
21
Evrópumenn, þar á meðal nokkur þúsund Islendinga. Indland
er eins og heil álfa með 243 tungum og mörgum þjóðflokkum.
Manntal var tekið þar siðast 1881 og ímglandsdrottning er síðan
1877 keisari Indlands (Ka'isar-i-Hind). Af þessum manngrúa,
320 miljónum, eru ekki enskir nema 37‘/2 —j— 10 = 47l/‘2
miljón, sem eru, eins og Islendingar, blandaðir keltnesku kyni.
Nú kunna menn að segja: Kínverjar eru 400 miljónir. Ef
allur þessi grúi af Kínverjum væri eins ötull og afkastamikilll
og tæki eins miklum framförum eins og þessar 47 miljónir og
hinar 60 miljónir bræðra og systra, sem þeir eiga í Banda-
fylkjunum í Norður-Ameriku, þá væru þeir drottnar heims-
ins. Bandafylkin hafa tekið langt um meiri framförum en
Bretaveldi á 50 árum t. d. íbúatala i New-York hefur tífaldast
á þeim tíma. Amerikumenn reikna svo til, að íbúar Banda-
fylkjanna fjölgi um þriðjung á hverjum 10 árum, þeir verða
þá 100 miljónir eptir rúm 17 ár, hérumbil 1905. En nú sem
stendur er enska móðurmál hérumbil 108 miljóna manns, en
margfalt fleiri tala hana. það er því óðs manns æði, að vera
að búa til mál upp úr Evrópumálunum, eins og gert hefur
verið, sem á að vera viðskiptamál milli allra þjóða. Að 20
árum liðum, verður enska móðurmál hérumbil 200 miljóna
manns.
Englendingar flytja 24 sinnum meira af kolum út 1887 en
þeir fiuttu 1837. Fólkið á hinum brezku eyjum hefur ekki
tvöfaldast á 50 árum en innflutningur matvæla hefur marg-
faldast. Innflutningur sikurs hefur fjórfaldast og líka innflutn-
ingur á tei, þó að tollur sé á því. Fólkið brúkar meira en áður,
og hefur betri fæðu og viðurværi. Vinnutíminn er viðast hvar
fimmtungi styttri og vinnulaun helmingi og tvöfalt meiri en 1837.
Verzlun alls Bretaveldis hefur sexfaldast og níu sinnum meiru
er nú skipað út og inn til Englands en 1837. I þessu víð-
lenda ríki ríkir frelsi alstaðar nema á Irlandi. Eyjan Mön
hefur sitt þing og sína stjórn og Malta fékk sjálfsforræði 1887.
Englandsstjórn neitar aldrei lögum frá þeim staðfestingar, þó
lögin séu Englandi i óhag t. d. þegar Canada leggur tolla á
enskan varning. Flestar eignir þeirra hafa nú þing, ráðgjafa-