Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 35
FRAKKLAND.
37
Frakkar leggja út rit Rússa og Turgjenjeff, einn af mestu
skáldsöguhöfundum Rússa, lifði allan seinni hlut æfi sinnar í
París. f>egar Katkoff, sem áður er getið, dó 1. ágúst, gerði
Dérouléde sér ferð til Rússlands og hélt ræðu yfir moldum
hans, en margir heldri menn á Frakklandi sendu sorgarkveðju.
Dérouléde var ákaflega vel tekið og var í mörgum stórveizlum
þar austurfrá. Nýtt tímarit er farið að koma út í París, sem er
kennt við báðar höfuðborgirnar og heitir Revue de Paris et
Pétersbourg. En það er þröskuldur milli vina, þar sem f>ýzka-
land er á milli þeirra. það er líka athugavert, að Rússar eiga
ekkert á hættu, þó þeir biði ósigur, því þeir geta látið vetrar-
rikið, vegaleysið og landflæmið hlifa sér, en Frakkar verða þá
hart úti einir saman vesturfrá. Frökkum sárnar óþakklæti Itala
sem áður er sagt frá. Thiers gamli sagði fyrir í ræðu á þingi
árið 1865 óþakklæti Itala og uppgang Prússa. Enginn trúði
honum þá, en það sem karlinn sagði hefir allt gengið eptir.
Sósíalistar á Frakklandi hafa haldið ótal fundi í París.
þeir eru í mörgum flokkum og lendir opt í áflogum milli
þeirra. Stjórnleysingjar (anarkistar) halda stundum ræður á
þessum fundum, eggja á að skera niður eins og kláðafé alla
stjórnendur, presta og auðmenn. Einn af forsprökkum þeirra er
Louise Michel. Hún vill láta drepa Parísarbúa, þangaðtil hún
getur vaðið blóðið upp í kálfa, en liklega býst hún ekki við, að
þeir endist til að hafa blóðstraum upp i hnésbætur. Hún situr
opt í varðhaldi, en er venjulega grimmari, þegar hún kemur
út aptur.
Eptir hinn hroðalega leikhúsbrúna 25. maí, skipaði bæjar-
stjórnin i París öllum söng- og leikhúsa-eigendum, að þeir
skyldu hafa fengið rafurmagnsljós að 3 mánuðum liðnum, og
ýmsar eldvarnir. í þessari bæjarstjórn eru margir af hinum
stilltari sósíalistum og komast þeir stundum í klandur við ráða-
neytið, þvi þeir vilja ráða sem mestu innanbæjar. En það
rnega þeir eiga, að fám höfuðborgum er jafnvel stjórnað að
öllu því, er að almennings þörfum lýtur, sem París.
‘) Leikhúsbruni varð nokkru seinna í Exeter á Englandi, en færra fólk
brann þar jnni.