Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 40
42
ÞÝZKALAND.
lands, verða að vera f>jóðverjar, segir stjórnin. f>að er bezt
fyrir þá sjálfa og þeir eru heimskir að vilja það ekki, segir
hún. En þessir kúguðu menn óska brennheitum óskum, að
þýzkaland verði sigrað í stríði sem fyrst og sundurlimað.
Sósíalistar á jþýzkalandi áttu í vök að verjast árið 1887.
Júngmönnum þeirra faekkaði við kosningarnar i febrúarm. Mál
voru höfðuð á móti ýmsum foringjum þeirra og var þeim gefið
að sök, að þeir hefðu brotið sósíalistalögin, sem stjórnin ætlast
til að bæli þá niður. Margir þeirra voru dæmdir í fangelsi.
Sósíaiistar héldu leynilega fund með sér í Sviss og kom þeim
saman um, að taka til sinna ráða og hlífa ekki stjórninni og
embættismönnum eptirleiðis. Bebel, einn af helstu foringjum
þeirra, hefur ritað merkilega bók: Kvennfólkið á hinum liðna
tíma, nútímanum og framvegis. Lýsir hann þar kjörum þess
og skoðunum sósíalista á því, hvernig þau eigi að vera. En
hann og margir aðrir þýzkir sósíalistar eru nú komnir að
þeirri niðurstöðu, að það dugi ekki að fara friðarveginn,
en verði að kollvarpa þessu rotna mannfélagi, þegar færi gefst.
Sósíalistar segja, að þeir vilji ekki berast á banaspjótum við
hina frönsku bræður sína, þó til ófriðar komi. f>að má nærri
geta, að stjórninni er illa við slikt, en þó er Bismarck kallaður
sósíalisti sjálfur, vegna þess að ýms lög i sósíalistiska átt hafa
komið frá stjórninni til að bæta kjör vinnumanna. það er ein
bók tii, sem er fyrir sósialista eins og heilög ritning sem
þeir vitna i. það er Das Kapital eptir Kari Marx, sem kom
út 1867. I þeirri bók eru aliar skoðanir þeirra vísindalega
rökstuddar. f>eir Stuart Mill á Englandi, A. Wagner, frægasti
hagfræðingur þjóðverja og Scháffle, ágætur hagfræðingur i
Austurriki, hafa sagt að þessi bók væri eitthvert hið mesta
snildarverk á þessari öld í hagfræði. þeir segja að sósíalismus
eigi langt i land, en hann sé eðlileg afleiðing þess ástands
mannfélagsins, sem nú er. Sósialistar lofa friði á jörðinni,
þegar kenningar þeirra drottna á henni, og benda á, hversu
herfilega Evrópa er stödd; hún hugsi ekki um annað en búa
sig undir að vinna sem mest víg og manndráp, og leggja
ógrynni fjár í það en auka volæði og fátækt.