Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 20
22
ENGLAND.
stjórn og ráðgjafaábyrgð, og England kostar sjálft landstjóra
og herlið á mörgum stöðum.
England drottnar enn á hafinu. Englendingar, t. d.
hinn ágæti sagnaritari Carlyle o. fl. telja sig vera niðja
og erfingja víkinganna og sækonunganna, sem fyrir hérumbil
1000 árum drottnuðu á hafinu og þessvegna kalla Eng-
lendingar í Bandafylkjum Norður-Ameríku Norðurlönd
ömmu sína. Meðan hafið er Englendingum opið milli
landanna, er riki þeirra ekki hætta búin. Eptir því sem sá
maður, er þekkir Asíu flestum betur, Vambéry, segir, er þeim
heldur ekki hætta búin á Indlandi. þó þeir hafi sitt þjóðar-
dramb eins og hver önnur þjóð, þá eru þeir samt ekki eins
hrokafullir og hinir frakknesku riddarar, sem sögðu í þrumu-
veðri: þó að himininn detti ofan, þá mundum vér halda
honum uppi á spjótsoddum vorum. En þeir riddarar voru
líka feigir og Bretaveldi er ekki feigt.
England (England, Great Britain).
írska málið. Gladstone. Fjárhagur. Utanríkismál. Atvinnuleysi.
Sósíalistar Júbilhátíð. Fólkshöl). Darwin. Skáldskapur. Skáldsögur.
Salisbury lávarður komst að stjórn eptir kosningar til
þings sumarið 1886. Flokkur hans á þingi var 317, Gladstones
191, Parnells 86 og Hartingtons (menn af Gladstones flokk,
sem fylgja Salisbury i írska málinu) 76 manns. Um áramótin
urðu breytingar á ráðaneytinu. Randolph Churchill gekk úr
ráðaneytinu á þorláksmessu 1886 vegna þess að honum þótti
ofmiklu fé eytt til flota og hers. Goschen úr Hartingtons
flokki tók við fjárhagsmálum eptir hann. Goschen er talinn
af öllum góður hagfræðingur og valmenni. W. H. Smith tók
▼ið forustu stjórnarsinna i neðri málstofunni og vantar hann
þó marga af þeim kostum, er til þess þurfa, einkum mælsku,
en Salisbury sjálfur gat ekki tekið það að sér, því hann situr i
lávarðastofunni. Stafford Northcote eða Iddesleigh lávarður, sem