Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 70
72
AFRÍKA.
víggirti tjaldstæðið. Hann skildi þar eptir nokkuð af liði sinu,
sem átti að viða að vistum, bera fregnir o. s. frv. Síðan lagði
hann af stað upp í land, sem er að öllu leyti óþekkt og
ókannað. þetta var í júní og kvaðst hann vonast eptir, að
hitta Emin Pasja í september, ef allt gengi vel, færa honum
Pasja-titilinn og koma honum burt. Siðan hafa komið ótal
flugufregnir um dauða Stanleys og blöðin hafa opt komið með
æfiminningu hans. Allar þær fréttir eru lygar og tilbúningur.
Ef allt fer skaplega, þá kemur Stanley til Evrópu á þessu ári
(1888) með handritið af bók sinní «How I found Emin Pasha»
(Frá því hvernig jeg fann Emin Pasja). Á árinu 1887 bárust
bréf frá Emin til Evrópu, en þau voru ársgömul. I þeim segist
hann vera ánægður, þar sem hann er, og veit ekkert um ferð
Stanieys. Nokkrir svertingjar hafa verið sendir til hans um
Zanzibarleiðina, til að láta hann vita um ferðina. Síðasta bréf
frá Emin Pasja, sem borizt hefur til Evrópu, er ritað 17. apríl
1887; hann segir í því, að hann viti að það eigi að hjálpa
sér burt, en hann vilji ekki yfirgefa land sitt í Afríku. Næsti
Skírnir verður að segja frá ferð Stanleys.
Ameríka.
Bandarlkin (United States. U. S. A.)
Framfarir. Ávarp forseta til þings í Washington. Ný lög. Innflutn-
ingar. Anarkistar. Óknyttir. Bókmenntir. Mannalát.
það er venjuiega talað um Bandaríkin einsogþau væru eitt
ríki, líkt og Frakkland eða Spánn. En þau eru nærri eins mikil
að viðáttu og öll Evrópa og hvert ríki af hinum 38 sam-
bandsríkjum, hefur stjórn, þing, og atvinnuvegi fyrir sig, þó
þau hafi öll eitt sameiginlegt þing i Washington. jþað er eins
og ef Evrópa öll væri eitt bandaríki og öll ríkin hefðu eitt
sameiginlegt þing t. d. í Prag, sem er hérumbil í miðri Evrópu.
Ibúarnir í þessu ríki fjölga um þriðjung á hverjum 10 árum og
manntal er líka tekið á þeim fresti. Síðasta manntal var tekið
1. júní 1880, og þá voru 50,155,783 íbúar að fráskildum