Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 13
EVRÓPA ÁRIÐ 1887.
15
og þykir honum þar gott að vera, því þar má hann um frjálst
höfuð strjúka hjá tengdaföður sínum og þarf ekki að hræðast
nihilista. Hann kom hingað seint í ágústm. og dvaldi á
Fredensborg. Skömmu áður hafði Vilhjálmur keisari hitt
Austurrikiskeisara í Gastein og i september fór Vilhjálmur að
sjá hersýning i Stettín við Eystrasalt. J>jóðverjar bjuggust við
að Alexander mundi skreppa yfir um Eystrasalt og hitta hann og
höfðu viðbúnað mikinn, en þeim varð ekki kápan úr því klæðinu.
Alexander kom ekki. Bismarck vildi nú láta sjá, að þjóðverjar
þyrftu ekki að dekstra Alexander til að koma. Bismarck
hafði, þó leynt færi, eptir sögn þýzkra og ítalskra blaða, endur-
nýjað þrenningarsambandið við Austurríki og Ítalíu í marz.
Um það leyti fékk lika Robílant, utanrikisráðgjafi Itala, heiðurs-
kross hinnar svörtu arnar af Jbýzkalandskeisara. En Bismarck
hefur þótt þurfa að búa betur um hnútana, þvi fyrst kom
Kalnoky, utanríkisráðgjafi Austurríkis, og heimsótti hann á hallar-
garði hans, Friedrichsruhe og siðan gerði hann Crispi boð að
koma og heimsækja sig. Crispi hafði tekið við forstöðu ráða-
neytis og utanríkismála á Italíu, þegar Depretis dó. Hann
lagði af stað og var á Fredrichsruhe dagana 1. — 3. október.
Enginn veit, hvað milli þeirra hefur farið, en allar likur eru
til, að þeir hafi reyrt fastar með sér satnbandið. Af orðum
Crispis við ýmsa blaðamenn, sem höfðu tal af honum, má
marka, að þeir hafi kveðið á, hve mikinn afla hvert riki skvldi
leggja til í ófrið og hve mikið hvert þeirra skyldi hafa upp úr
krapsinu að leikslokum. Crispi fór heim og hélt 25. október
ræðu í Túrin. Hann sagði, að aldrei hefði sambandið verið
jafninnilegt sem nú. það væri eingöngu stofnað til að halda
við friðinum, en það mundi ekki verða þokað í neinu fyrir Rússum
á Balkansskaga. Við Frakkland ætlaði Italía ekki að eiga nema
gott eitt, því hún væri þakklát systir Frakklands. Frönsk blöð
hæddust að sambandinu og kölluðu það sambandið helga.
Nú víkur sögunni til Alexanders keisara á Fredensborg. Hann
ætlaði heim i október, en börn hans lögðust í mislingum og hann
beið þangað til þau urðu albata. Var þá komið fram í miðjan
nóvember og ís á höfnum Rússa við Eystrasalt. |>á neyddist