Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 39
&ÝZKALAND.
41
ann og að ráðum konu sinnar hefur hann kallað enskan lækni,
Mackenzie að nafni, til að lækna sig. Ymsir þýzkir læknar
hafa sagt, að það væri krabbamein og er spáð krónprins muni
deyja úr því. Er það mikill skaði fyrir þýzkaland, þvi krón-
prinsinn er mikill atgjörfismaður til sálar og líkama. Kona
hans er elzta dóttir Victoriu og alin upp í ensku frelsi. Henni
og Bismarck er ekki vel til vina, og heldur hann, að þau
hjónin mundu breyta stjórnarhorfi á þýzkalandi, ef krónprins-
inum verður lifs auðið. Krónprinsinn býr sem stendur í San
Remo á Italíu, og er eigi hægt að segja, hvort þetta mein
dregur hann til dauða. Vilhjálmur, elzti sonur krónprinsins,
stendur næstur til ríkiserfða og er sagt, að hann vilji helzt
halda öllu i stjórnarhorfi Bismarcks.
Otto von Bismarck, Reichskanzler (rikiskanselleri) á þýzka-
landi, hélt embættisafmæli 23. september ; þann dag voru 25 ár
síðan hann varð ráðgjafi. Hann var sendiherra i París 1862
og hét Bismarck-Schönhausen. Nú lætur hann sér nægja, að
heita Bismarck. Keisari sendi honum bréf og blómsveig úr
járni enda hefur það lengi verið orðtak Bismarks: Eisen und
Blut (járn og blóð). það hefur heldur enginn stjórnvitringur
unnið eins mikil afreksverk á þessari öld með járni og blóði
eins og hann. þessvegna er um hann eins og Júpiter á
Olymp; þegar hann hleypir brúnum þá skelfur Evrópa.
Hann er nú farinn að eldast (fæddur 1815) og býr optastnær
á hallargörðum sinum, Friedrichsruhe og Warzin. Sonur hans
Herbert Bismarck er önnur hönd hans i utanríkismálum og
segja þjóðverjar, að hann sé eptirmynd karlsins og muni taka
við af honum, þegar hann er orðinn þreyttur.
Pólverjar norðaustan til á þýzkalandi eru rúmar 2 miljónir.
þeir sæta þungum kostum. Prússar þröngva að þeim meir og
meir. Um haustið 1887 var skipað, að öll kennsla skyldi fara
fram á þýzku í pólskum skólum. Mótmæli Pólverja lét stjórnin
eins og hún heyrði og sæi ekki. það var einu sinni sagt, að
Bismarck ætlaði að reisa við Pólland og hafa það eins og
varnargarð móti Rússum. Nú eru Pólverjar hættir að hugsa
það. þeir Frakkar, Pólverjar og Danir, sem eru þegnarþýzka-