Skírnir - 01.01.1888, Qupperneq 51
RÚSSLAND.
53
vilja Pólverjar bandalag við Rússa móti þjóðverjum, sem kall-
ast á rússnesku og pólsku Njemets (málleysingjarnir) gagnvart
Siavjanin (hinir mælandi), sem Slafar kalla sig. Rússar börð-
ust 1877—78 fyrir frelsi trúarbræðra og kynbræðra sinna og
ennþá kalla rússnesk skáld Vestur-Evrópu «hið ókristna land».
Nú vilja Búlgarar ekki hverfa undir væng Rússa, þó þeir hafi
lagt blóð og peninga í sölurnar fyrir þá. það kalla Rússar
óþakklæti, og skoða Búlgara sem óþekk börn. Rússar játa, að
Búlgarar hafi tekið miklum framförum siðan þeir fengu sjálfs-
forræði, Búlgarar eru nú að hreinsa mál sitt og það er kominn
skóli í hvert þorp í landinu. Rússar eru þolinmóðari en
nokkur önnur þjóð og þeir vita vel, að hugmyndin um Alslafa-
veldið er sterk í hjörtum ótal Slafa fyrir utan Rússland. Há-
skólinn í Prag er gróðrarstía Alslafa. Við hann var sagnarit-
arinn Palacky, hinn ágætasti sögumaður, sem Alslafar hafa átt.
Constantinopel heitir á rússnesku Tsargrad (garður tsarsins).
Frá þeirri borg er hin grísk-kaþólska trú runnin og henni
verða Rússar að ná, en siðan 13. júlí 1878 sjá Slafar, að leiðin
til Constantinopel liggur ekki um Vín heldur um Berlín. jþeir
gleyma sjaldan um leið að minnast þess, að bæjarnafnið Ber-
lín er, eins og nafnið Vín, slafneskt nafn. Rússar minnast líka
þess, að þeir sigruðu 3 ósigrandi menn, Karl tólfta, Friðrik mikla
og Napóleon mikla. Engir hermenn þola eins vel kulda og hita,
hungur og þorsta eins og Rússar. I ófriðnum 1877 gekk her-
deild Gúrkós i júlíhitunum á Tyrklandi 5 milur vegar á degi
og drógu svo fallbyssur sinar yfir 1900 feta hátt slcarð. Hinir
sömu menn brutust seinna suður yfir Balkanfjöllin um hávetur
i grimmdarhövkum og þó vörðu Tyrkir fjöllin.
Til að sýna hugarþel Rússa til Bismarcks, set jeg hér
kafla úr grein um hann sem stóð haustið 1887 i blaðinu Grasj-
danin (borgarinn), f>etta blað er lesið enn meir en Moslcvu-
tíðindi og greinin var eptir hinn nafnkennda blaðamann, Mesjtjer-
ski fursta: Napóleon 3. sagði: keisaradæmið er friðurinn. Bis-
marck segir: keisaradæmið (þýzka) er friðurinn. Bara það fari
nú ekki eins fyrir Bismarck eins og Napóleon 3., sem átti i
ófriði þangað til hann steypti sjálfum sér. Rússar eru þolin-