Skírnir - 01.01.1888, Page 58
60
DANMÖRK.
manna hans. Berg kom út nýju blaði í Höfn, Aftenbladet.
fegar komið var á þing í október, sást að Berg hatði ekki
nema 6 — 8 af þingmönnum með sér, en blað hans sagði, að
ef til nýrra kosninga kæmi, mundi verða annað hljóð i strokkn-
um meðal vinstrimanna á þingi. þingið vildi ekki ganga að
bráðabirgðalögum stjórnarinnar og var því frestað þingsetu frá
20. október fram í desember. I desember voru þingmenn
orðnir linari og greiddu mörg lög af hendi, þvert ofan í vilja
Bergs, sem nú réði engu lengur á þinginu. Stjórnin nam úr
gildi á þessu ári bráðabirgðalög sín um vopnaburð (Riífelloven),
sem voru sett 1885, og þótti þeirra ekki lengur við þurfa,
Danir héldu áfram að safna fé með samskotum til víg-
girðinga kringum Höfn og víggirðingunum sjálfum var haldið
áfram. Um árslok var búið að safna á aðra miljón. Til dæmis
um, hver striðshugur er í Dönum, er það að leikrit eitt var
leikið nærri 200 kvöld í röð og húsfyllir á hverju kvöldi. það
hét <<Landso!daten» (hermaðurinn) og var efnið tekið úr ófrið
Dana við þjóðverja 1848—50. Dansleikar voru haldnir og
tombólur til að safna fé. Bahnson hermálaráðgjafi ferðaðist um
landið og hvatti menn í ræðum. þjóðverjar fóru loks að taka
eptir þessu og þýzk blöð sögðu, að allur þessi vígbúnaður
væri allur i blóra við þá, að Rússar hjálpuðu Dönum í laumi
um fé til víggirðinganna, að þó að viljinn til hins illa væri
meiri en mátturinn til þess hjá Dönum, þá væri óþarfi að láta
þá og þeirra litla Boulanger (Bahnson) storka sér. Frönsk og
rússnesk blöð fóru að bera í bætifláka fyrir Dani. Danmörk
var orðin blaðaefni i Evrópu meir en hún hefur verið síðan
1864. Vinstrimenn héldu fundi til að mótmæla athæfi stjórn-
arinnar. þeir sögðu, að þjóðverjar gætu flutt á 12 timum her
manns yfir á Sjáland, því floti þeirra í Eystrasalti, sem 1864
var minni en Dana, væri nú meiri. í ágúst sagði Norddeutsche
Allgemeine Zeitung, að hin þýzka stjórn væri ekkert riðin við
þessar árásir blaðanna á Danmörk.
Hinn 7. dag septembermánaðar var Louise drottning
sjötug að aldri. þann dag var margt stórmenni samankomið
á Fredensborg, Rússakeisari, Grikkjakonungur, prinsinn af