Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 68
70
AFRÍKA.
andi. Marokkó er því enn keisaradæmi, þangað til soldán
deyr, hvað sem þá tekur við.
Congóríkið var stofnað 1885. I því ríki er ekki hægt að
hafa manntal, en Stanley, sem er kunnugri en nokkur annar
þar í landi, ætlar að ibúar þess séu um 40 miljónir og af þeim
eru ekki nema fáeinar þúsundir Evrópumenn. Ríkið er undir
vernd Belgakonungs og belgiskur maður, Janssen að nafni, er
ríkisstjóri. Ríkið dregur nafn sitt af Congófljótinu, sem er lífs-
æð þess; á því fljóti ganga nú 9 gufuskip. Mörgum Evrópu-
mönnum verður loptslagið að bana og það gengur illa að
kenna svertingjum Evrópusiði. Ríkisstjórinn veit litið um aðra
þegna sína, en þá sem næst honum búa, og sumir þjóðflokk-
arnir i ríki hans eru eintómir dvergar. Boma heitir höfuð-
borgin, ef borg má kalla, því ekki eru húsin mörg. Verzlun
er mestmegnis með filabein og svertingjar eru orðnir mestu
brennivinsberserkir. Ymsir segja, að Evrópumenn kenni Svert-
ingjum eins mikið af vondum siðum eins og góðum og hafi
afrekað meira illt en gott í Afríku.
þegar Gordon gamli var landstjóri Egyptajarls yfir Súdan,
þá var í þjónustu hans læknir frá Austurríki, að nafni Dr.
Schnitzler. þessi maður reyndist Gordon mjög vel til margs
annars en lækninga. Honum þótti hann svo vel fallinn til að
stjórna öðrum, að hann gerði hann landstjóra yfir héruðum
suður af hinu egypzka Súdan 1878; þau voru ókönnuð af
Evrópumönnum og voru fyrir norðan hin miklu Mið-Afríkuvötn
undir miðjarðarlínu. |>að var hinn mesti vandi að stjórna þar
villimönnum, sem ekki voru nema að nafninu til háðir Egyptajarli,
en Schnitzler, sem nú kallast Emin Bey, leýsti það snildarlega
af hendi, og var hann þó öllum stundum að rannsaka náttúr-
una í þeim löndum, sem hann stjórnaði. Eins og kunnugt er,
óð síðan Mahdíinn yfir Súdan og Gordon féll { Khartum 1885.
Um Emin Bey fréttist að hann sæti við stjórn eptir sem áður
en með þv{ að óvinir væru öllu megin við hann langar leiðir,
þá mundi hann víst ekki geta varizt lengi.
Nú er að segja frá þvi, að Stanley vildi ekki vera jarl 1
Congóríkinu, þv5 hann var óánægður með ýmislegt í því riki,