Skírnir - 01.01.1888, Side 74
76
AMRÍKA.
dollara. það hefur verið reynt á ýmsa vegu, að ráða bót á
þessu, en það hefur ekki dugað, nema í þann svipinn og nú
eru öll ráð reynd. Að leggja féð í banka iandsins er ekki
ráðlegt. Ef þingið heldur áfram afskiptaleysi sínu, þá hefur
það ábyrgðina fyrir öllu því, sem af þessu kann að leiða. Vér
verðum að taka burt orsökina til hættunnar; alit annað er kálc.
Ekkert er betur faliið fyrir tolla, en tóbak og vínföng, og þeir
tollar liggja ekki hart á neinum hluta þjóðarinnar. Aptur eru
margir innflutningstollar skaðlegir, ránglátir og óþarfir. f>að
ætti strax að ráða bót á þessu, þó ekki megi alveg taka þessa tolla
af vegna útgjalda rikisins. Einkum skyldi þess sérstaklega gætt,
að gera ekkert ameríkönskum verkmönnum i óhag. Samkvæmt
siðasta manntali höfðu af 17!/a miljón verkmönnum einungis
3,623,000 atvinnu, sem sagt var, að hinir háu tollar vernduðu.
Nú skyldi séð svo um, að laun verkmanna ekki lækkuðu, þó
að tollarnir væru færðir niður. Ullartollurinn væri skaðlegur
af þvi bændur tapa mildu meiru á hinu háa fataverði, en þeir
græða á hinu háa ullarverði. f>ví næst er talað um ýmsa óþarfa
tolla. f>ingið er beðið um, að láta ekki hagsmuni sveita og
héraða standa fyrir velferð ríkisins og flokkarnir um, að láta ætt-
jarðarskylduna sitja i fyrirrúmi fyrir öðru. Nauðsynjavörur eiga
að vera ódýrari, en þær eru nú. Að kalla þetta tilraun til að
innleiða frjálsa verzlun er ranglátt. f>að er skylda vor við
þjóðina, að láta skattana ekki vera meiri en þarf til nauðsyn-
iegra útgjalda sparsamrar stjórnar og að skila aptur þjóðinni
því fé, sem hefur hrúgast upp i fjárhirzlunni. Cleveland segist
hafa brugðið út af venju þeirri, sem fylgt hefur verið i þing-
setningaávörpum forseta hingað til og sleppt að geta nokkurs
nema þess eins, sem væri merkilegra en allt annað.
f>að er fáheyrt, að eitt riki komist í standandi vandræði
út af ofmiklu fé. Hugsunarháttur Amerikumanna er einkenni-
iegur. f>eir álíta það hróplega synd, að taka meira fé frá þjóð-
inni, en þarf til að halda við stjórninni. f>eir álita enn fremur
að það sé synd, að taka frá henni fé til hers og flota.
Her þeirra er 27,000 rnanns og meiri her þurfa þeir ekki.
f>að ræðst enginn á þá. Á Englandi og í Bandaríkjunum er