Skírnir - 01.01.1888, Side 80
82
ÁSTRALÍA.
á leiðinni. J>eir hafa kjötið í frostbúðum, sem svo kaílast, og
um borð er því alltaf haldið í tilteknum kulda. þetta kjöt
hefur samt ekki komizt upp í nema 2/3 af verði ófreðins kjöts.
Flutningarnir aukast samt og Ástralíumenn hafa von um að
geta bætt flutningsaðferðina Svo mikið, að með tímanum verði
hið aðflutta kjöt jafnvei borgað og annað kjöt, og getur það
orðið mikil auðsuppspretta í landi, þar sem féð er eins og
sandur á sjávarströndu. I Englandsþætti er sýnd mannfjölgun
í Astralíu og má bæta því við, að 1871—81 fjölgaði Astralíu-
búum um helming tæpan (42%). þetta á eingöngu við hinn enska
hluta Ástralíu, því hinn hlutinn er ekki nema lítt kannaðar
smáeyjar og hinn þýzki hlutií af Nýju Guineu er enn
minna kannaður. Hin enska Ástralía skiptist í mörg ríki, hvert
með sína stjórn og sitt þing, Nýja Suður-Wales, Victoría, Nýja
Zeeland o, s. frv. Nú vill hin enska stjórn, að þau gangi í
bandalög, fari að dæmi Bandarikjanna og hafi sameiginlegt
þing. Arið 1885 lagði hún frumvarp þar að lútandi fyrir hin
ýmsu þing, en þau hafa enn ekki öll gengið að því. Annars
eru Ástralíumenn ekki smáhuga. þeir segja, að ef Bandaríkin
taki meiri framförum en England, þá taki Ástralia meiri fram-
förum en Bandaríkin. Astralía verði önnur Evrópa, þegar hin
gömlu ríki fyrir austan Atlantshafið séu dauð; hún Iiggi betur
fyrir verzlun og viðskipti en Ameríka sjálf.
Ástralíumenn ætla að gera út skip, sem á að komast eins
langt á leið til suðurpólsins eins og verða má. þeir leggja
mikið fé i að útbúa það og spá vel fyrir ferðinni. það er meir
en meðalskömm fyrir Evrópu- og Amerikumenn, sem ekki hafa
komizt að norðurpólnum, ef vér verðum fyrri til ‘að komast að
suðurpólnum, segja þeir.
Ýmislegt.
Panamaskurðurinn. Hið nýja Eyrarsund. Jarðskjálfti.
Lesseps hefur nú sagt, að Panamaskurðurinn verði ekki
búinn fyr en 1890 og þannig verði það 10 en ekki 7 ár, sem ganga