Skírnir - 01.01.1888, Síða 81
ÝMISLEGT.
83
til að grafa skurðinn. Kostnaðurinn verður 1200 miljónir fránka
eða nærri helmingi meiri en áætlað var í fyrstu. Frakkar eiga
flest hlutbréfin í skurðinum og Lesseps vill nú að þeir leggi til
það fé, sem á vantar. Allar líkur eru til, að hinn gamli sóma-
maður hafi sitt fram i þessu máli eins og öðrum málum.
Eyrarsund hið nýja kalla þjóðverjar skurðinn, sem þeir
eru byrjaðir á að grafa milli Eystrasalts og Norðursjóar. Vil-
hjálmur keisari stakk fyrstu pálstunguna til hans 3. júní við
bæinn Holtenau, sem er við Kílarfjörð. Skurðurinn verður
grafinn frá Kil gegnum Holsetaland og út i Elbe (Saxelfi).
Hann verður nærri 15 danskar mílur á lengd, 190 feta á
breidd og 27 feta að dýpt. Herskip og stórskip geta komizt
hvort fram hjá öðru á honum. Kostnaðar áætlun er 156 milj-
ónir marka og afþví leggja Prússar einir til 50 miljónir. Flotar
þjóðverja í Eystrasalti og Norðursjónum, í Kil og i Jahde geta
þá náð saman. Arið 1777 stóð Kristján 7. Danakonungur á
sama stað og Vilhjálmur keisari í sömu erindum. það ár var
byrjað að grafa Egðuskurðinn, sem var lokið 1785. Nú verður
minnisvarðinn, sem var reistur þar sem Kristján 7. stóð,
tekinn burt. Svo er tilætlað, að skurðurinn verði búinn árið
1894. þjóðverjar segja, að 200 skip farist árlega viðjótlands-
skaga og að þá leið þurfi ekki að fara, þegar skurðurinn er
búinn. Gufuskip verði 13 klukkustundir á leiðinni um hann.
þau skip, sem mest stytta sér leið (frá Norður-þýzkalandi,
Hollandi og Suður-Englandi) með því að fara um hann, græði
45 klukkustundir. Frá Skotlandi græði þau ekki nema 3l/2
klukkustund. Gjald á hverri lest átti fyrst að verða 75 Pfennig
(67l/a eyrir) en flestir eru á því, að það verði sett niður í 30
Pfennig (27 aura) til að hæna skip að skurðinum. Hérumbil
35,000 skip fara árlega gegnum Eyrarsund og þjóðverjar telja
Svo til, að 18,000 af þeim muni nota skurðinn til að stytta sér
leið. Verzlun Hafnar í Eystrasalti verður eyðilögð, þegar Ham-
borg og Kíl ná höndum saman; Höfn hefur ekki bolmagn til að
keppa við Hamborg. Danir eru að tala um að afnema lesta-
gjald skipa í Höfn, en það verður þó ekki í bráð og Ham-
borgarar hafa haft lestagjaldslaust hafnarlægi í nokkur ár.
6*