Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1888, Side 83

Skírnir - 01.01.1888, Side 83
ISLAND. 85 við ibúa hennar, en vegna hinna ágætu bókmennta þeirra i fornöld, sem ekki eiga sinn líka hjá neinni þjóð sem stendur — jeg á við Island (oh! frá mótstöðumönnum stjórnarinnar). Mér sýnist hinum heiðruðu þingmönnum andspænis oss vera undarlega annt um að heyra ekkert um þetta efni. Liklega vilja þeir heldur, að jeg éti upp aptur alla hina þreytandi og margjórtruðu röksemdaleiðslu, sem vér höfum hlustað á frá þessum bekkjum, en að jeg reyni að gera þetta mál ljósara með nýju dæmi. Islendingar, sem eru hugstór og menntuð þjóð, þó landið sé strjálbyggt og fátækt, áttu í 30 ár í bar- áttu við hið danska konungsvald. jþeir heimtuðu sjálfsforræði; þeir mótmæltu því, að þeim væri stjórnað i Danmörk og af Danmörk. þegar Danmörk bauð þeim atkvæði og sæti á hennar þingi, þá neituðu þeir þvi, af þvi þeir mundu verða ofurliði bornir þar, og af þvi það þing, sögðu þeir, kærði sig ekkert og vissi ekkert um mál þeirra. Arið 1874 lét hin danska stjórn loksins undan og veitti hinu islenzka alþingi (hið gamla sögunafn á þingi þeirra) það, sem kalla má sjálfs- forræði. Síðan hefur allt gengið með nokkurnvegin sátt og samlyndi. íslendingar eru enn ekki ánægðir, því þeir vilja að aðsetur stjórnarinnar (hinnar íslenzku), sem Danir halda áfram að hafa í Höfn, skuli flutt til höfuðborgar íslands. þeir hafa því einungis fengið helminginn af þeirri heimastjórn, er þeir heimtu og helminginn af þeirri heimastjórn, er vér ætlum að gefa Irlandi með þessu frumvarpi. Lord Randolph Churchill (þingmaður South Paddingtons): Hvað langt er milli Islands og Danmerkur? Bryce: Hinn göfugi lávarður mun sjá það, ef hann lítur á kortið. Lord Randolph Churchill: Er það hérumbil 1000 mílur (enskar)? Bryce: Hérumbil 1100 mílur; jeg skal gefa hinum göfuga lávarði 100 mílur i viðbót. Fjarlægðin breytir engu verulegu í rök- semdaleiðslu minni. það var alveg eins hægt fyrir Dani að segja, að þeir vissu miklu betur hvað íslendingum væri fyrir

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.