Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1908, Page 9

Skírnir - 01.12.1908, Page 9
Grifeldur. 297 — Og hann lét vel yfir —? — Já. Hann kvartaði að vísu um rúmleysi í blaðinu. Annars held eg að hann hefði tekið hann í síðasta blað — Sjáum til. — Svo hitti eg hann aftur, og bað hann endilega að taka hann í biaðið, sem kæmi út um hvítasunnuna. — Og hann ætlar að gera það? — Já, það er eg viss um. — Spurði hann ekki um ástæðuna? spurði eg og leit brosandi framan í Jónas. — Nei. — En hann var skolli kendur. Jónas var svo barnalega glaður yfir þessu, að eg gat ekki annað en samglaðst honum. En sú hamingja, sem morgundagurinn átti að færa honum! Fyrst trúlofuniria, og svo kvæðið í ofanálag! Eg kannaðist við kvæðið »Gráfeld«, því Jónas hafði oftar en einu sinni þulið það yfir mér. Það var um tind- inn upp af Gráfeldseyri, æskuvin okkar beggja. Það var liðlega rímað og stórlýtalaust; en raunar var það ekki annað en kvæði Kristjáns Jónssonar um Dettifoss snúið upp á Gráfeld. Bragarhátturinn var sá sami og hugsunin nauðalík. Efnið var ástar- og aðdáunargæla til fjallsins. En niðurlag kvæðisins var brennandi bæn til vætta þeirra, sem Gráfeld bygðu, að þær gæfu honum að kvæðislaun- um það, sem þær sæju honum fyrir beztu. — En hvernig gekk þér hjá gullsmiðinum ? spurðí eg eftir dálitla þögn. — Vel. Eg stóð yfir karl-skrattanum þangað til hann var búinn. Var ykkur ekki farið að leiðast? — O-o, nokkuð svo. Einar gamli 'var farinn að »syndga«. — En Baldvin var á vísum stað, þar sem vel fór um hann! — Þú hefir þá fengið hringana. — Já, þeir erj hérna. — Hann seildist ofan í vestis- vasa sinn og tók þar upp ofurlítinn silkipappírs-bögguL og sýndi mér. Þar mótaði skýrt fyrir tveim hringum. — Er grafið innan í þá?

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.