Skírnir - 01.12.1908, Blaðsíða 86
374
Erlend tíðindi.
talinn lúta Tyrkjasoldáni. Hann er á stærð við hálft ísland og
ríflega þó, með 2 miljónum íbúa.
Þau urðu ókvæða við, hin stórveldin, og var búist helzt við
allsherjar-ófriði um hríð. Þau þóttust grátt leikin af félaga sfnum
þar í Vín. Hitt varð úr, fyrir skörulega íhlutun þeirra stjórnvitr-
inga álfunnar, er friðinn vilja varðveita til lengstra laga, að ófriði
tókst að afstvra, og skyldi þá getigið á allsherjarráðstefnu til
að jafna það mál alt, anstræna málið gamla. Þegar fiá leið, dró
nokkuð úr þvi áformi aftur, og óráðið enn, hvort nokkuð verður
úr þeim fundi eða ekki.
í sama nmnd sem Búlgarar lýstu sig óháða Tyrkjasoldáni,
hugðu Kriteyingar sér til hreyfings og sögðu sig í lög með Grikk-
jum, líkt og þeir hafa brugðið fyrir sig áður oftar en einu sitini.
En eigi dirfðist Grikkjakonungur að taka því, við mótmæli soldáns
og ósamþykki stórveldanna. Þar situr því enn við sama og áður.
Hér er yfirlit, sem sýnir, hvað saxast hefir á limina hins sjúka
manns á síðari tímum, frá því snemma nokkuð á öldinni sem leið;
og merkja ártölin aftan við nöfn hinna nýju ríkja, hvenær þau
urðu fullvalda.
Búlgaria (1908) . 1800 fermíl. 4 milj.
Grikkland (1830) 1200 - 2V2 -
Montenegro (1852) 150 lU -
Rúmenía (1878^ 2400 — 7 —
Serbía (1878) 900 - -
Bosnía-Herzegovína ... 1000 2
Samtals... 7450 fermíl. 1S1/^ milj.
Tyrkland .. 3000 - 6V2 -
Alls... 10450 fermíl. 25 milj.
Riki Tyrkja hér í á!fu er þvi
uú orðið ekki þriðjungur þess
sem það var fyrir 80 árum, hvorki að víðlendi né fólksfjölda, nema
síður só.
En austur i Asíu á Tyrkjasoldán landeignir, sem tiema 30,000
fernn'lum, og tala þegna hans þar 17—18 milj.
Tyrkjaveldi alt er því nú 33,000 fermílur og íbúarnir um
24 milj.
Hálffullvalda urðu framantalin lönd, er gengið hafa undan
Tyrkjasoldáni, nokkuru fyr en þetta l'lest, sem fullveldisártölin
votta: Serbía 1812, Gríkkland 1827, Rúmenía 1856, Búlgaría