Skírnir - 01.12.1908, Side 75
Ritdómar.
363
Sveinungi: I'aS var þá nótt, sem þú hólzt, að eg hefði orðið úti
í stórhríðinni, o. s. frv., löng klausa um atvikin, þegar hann kom
heim. Hór er alls ekki sjáanlegt sambandið við það, sem talað
hefir verið um. Svona taia menn ekki. Og sams kouar hugsana-
los kemur fyrir hvað eftir annað.
En að hinu leytinu leynir það sór ekki, að íslenzk þjóð hefir
eignast nýtt skáld, þar sem Jóhann Sigurjónsson er — afbragðs-
skáld vafalaust, þegar lífsreytislan hefir fengið meiri þroska, og
listamaöuriun hefir átt kost á að temja sór betur glímuna við
yrkisefni sitt. Hjónin eru sýnd með skýrum dráttum listarinnar.
Ritið er fult, af yndislega vel orðuðum ummælum. Og yfir alt er
lagður einkennilegur og hugnæmur þunglyndis-blær, sem samboð-
inn er heimilinu þar sem skyldan hefir gengið í gleðinnar stað,
og samboðiun þeim stundum, er verk mannanna eru að vet'ða að
rústum — þeim stundum, er vilji mannanna brotnar, af því að
hann getur ekki bognað, sá viljinn, er engan tekur til greina
annatt en sjálfan sig — þeim stundum, er æskan fær ekki notið
sín, nema ellin farist í rústunum. Slíkan blæ leggja góðskáldin
ein á hugsanir sínar.
*
* *
BJÖRN BJARNASON dr. phil : ÍÞRÓTTIR FORNMANNA á Norðurlöndutn.
Reykjavik 1908 [Sigurður Kristjánsson].
Ritið er upphaflega samið á dönsku. Höf. hlant doktors-
nafnbót fyrir það. Hann er settnilega fróðastur allra núlifandi
manna um þetta eftti. Naumast getur hjá því fariö, að þessi bók
verði eftirlætisbók íslenzkra ungmenna, enda væri það og vel farið.
Nú er stórum að lifna áhugi æskulýðsitts hór á landi á íþróttum,
og það svo, að gagngerð breyting hefir orðið á 2—3 árum. Vafa-
laust eflir þessi bók þann áhuga. Þekking á fornritum vorum og
Jífi forfeðra vorra hefir að undanförnu verið einna sterkasta hvatn-
ingaraflið til allrar manndáðar hór á landi. Svo mun verða hór
eftir. Og bók dr. B. B. eykur þá þekking að miklunt mun.
* * *
ÞJÓÐTRÚ 0G ÞJÓÐSAGNIR. Safnað hefir 000UR BJÖRNSSON. JÓNAS
JÓNASSON bjó undir prentun. I. bindi I.—II. hefti. Akureyri 1908
[Oddur Björnsson].
Þetta er upphaf að miklu safni, sem Oddttr Björnsson hefir í
hyggju að koma út. Fyrsta bindið, sem þetta er partur af, virðist
hann fullráðinn að prenta. Um síðari bindin fer eftir þeitn viðtökum,