Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1908, Side 66

Skírnir - 01.12.1908, Side 66
354 Islenzk heimspeki. eg ætla að eins að minna á, að Herbert Spencer varð' undarlega veikur um líkt leyti æfi sinnar og Brynjúlfurr eða þegar hann var hálffertugur. Fer það nú ekki all- sjaldan saman, að menn telja hugsanir heimspekinganna hégóma, en heilsuleysi þeirra uppgerð, og skilja hvorugt. En Brynjúlfi urðu þessi veikindi sá aðalstuðningurr sem lífið hefir veitt heimspekisgáfu hans. Þvi að nú varð hann ófær til líkamlegrar vinnu, en þoldi, að minsta kosti þegar fram í sótti, að lesa og reyna á sig andlega. Varð þessi harðleikna hjálp, sem vikið var á, til þess að styrkja trú Brynjúlfs á guðlegan kærleika og forsjón. Það er að þessu eins og svolítill keimur af trú rómverska spek- ingsins Seneca, að vitrum manni geti í rauninni ekkert ilt viljað til; er það undarleg trú og væri góð ef hún gæti breytt illu í gott. Það má nærri því geta, að lífið horfði fremur örðugt við Brynjúlfi þegar svona var komið, og ekki virtist auðvelt að vinna fyrir sér; og ekki síst þar eð mönnum hefir af auðskildum ástæðum hætt mjög við að tengja hug- myndina »vinna« eingöngu við líkamlega áreynslu. Og þó að Brynjúlfur hafi alt af verið vinsæll maður vegna framkomu sinnar, þá hefir velvildin sjálfsagt verið blandin lítilsvirðingu að minsta kosti framan af, og ef til vill alt þangað til honum var sýnd opinber viðurkenning með því að veita honum riddarakross dannebrogsorðunnar, — nei, dannebrogsmannanna heiðursteikn var það. Því að allur fjöldinn sér ekki með eigin augum, heldur annara; það sem hann metur við menn, er eiginlega ekki hvað þeir eru af sjálfum sér, heldur sú viðurkenning, sem þeim hefir hlotnast. En heiðursteikn Brynjúlfs sýnir, að ,orður’ geta komið vel niður og gert gagn. Að það lægi í rauninni nokkur vinna í hans mörgu blaðagreinum t. a. m. eða í því að vera annar eins fræð- ari fyrir þá sem í kringum hann voru, eins og Brynjúlfur mun jafnan hafa verið, hefir víst verið færrum ljóst en skyldi, þegar frátaldir eru einkum nokkrir prestar. Því,

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.