Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1908, Page 88

Skírnir - 01.12.1908, Page 88
376 Erlend tíðindi. taldi sér tnargt til ágætis um góðvild og greiðvikni þeim til handa, Hann kvaðst meðal annars hafa afst/rt því, að hin stórveldinr aðallega Frakkar og Eússar, skærust í leik til liðs Búum í viður- eign Breta við þá um árið, og meira að segja lagt ráðiri á, hvernig hafa skyldi Búa undir. Þetta hjal mæltist illa fyrir og varð úr úlfaþytur mikill bæði' í blöðum Breta og Þjóðverja. En veizt að Búlow ríkiskanzlara óðara en þing kom saman í Berlín og hann sakaður um vanrækslu áríðandi embættisskyldu, er hann hafði eigi afst/rt því, að keisari lóti þetta samtal frá sér fara til birtingar alþjóð. Lá við sjálft, að þetta yrði kanzlara að falli, og sefuðust þingmenn þá fyrst, er hann flutti þau orð frá keisara, að hann kannaðist við, að nauðsyn bæri til að tala varlega jafnvel einslega og hvernig sem á stæði. Hjal keisara hafði þau áhrif á B r e t a, að þeir sækja nú enn- harðara róðurinn að auka herskipastól sinn. Þeim þótti sem þar hefði legið fiskur undir steini fyrir honum, að láta þá ugga miður að sér og fást eigi um, þótt Þjóðverjar ykju sinn herskipastól af kappi. Það var eitt í skrafi keisara, að vel mætti svo fara, að' hvorirtveggju gerðu samlög um hernað í Austurveg heims að hnekkja uppgangi stórveldanna þar (í Asíu austanverðri), og kæmi þá í góðar þarfir, að hvorirtveggju væri sem bezt vígir á sjó. En ekki gerðu þau ummæli nema að blása að kolum um tortrygni Breta. Bandaríkjamenn í Norður-Ameríku kusu sór n/jan forseta 3. nóv., með því jið embættistími Th. Roosevelt var þegar á enda runninn. Hann mundi þeir hafa viljað hafa áfram yfir sérr ef þess hefði verið kostur. En svo var eigi. Hann þvertók fyrir það. Euda þykir og hefir alla tíð þótt betur hl/ða, að skift sé um forseta jafuan, er lög gera ráð fyrir, en það er á 4 ára fresti, eða þá að minsta kosti sami forseti eigi látinn vera við völd lengur en tvö kjörtímabil í senn. En Roosevelt tók við að McKinley látnum árið 1901. En svo hefir Roosevelt kyut sig vel, að stórmikill meiri hluti varð með matini þeim, er hann lagði með. En það var William Taft hermálaráðgjafi, stórvel metiun atkvæðamaður, þótt vera muni minni skörungur en Roosevelt. Kjörmenn hans megin urðu 302r en 181 með keppinaut hans, William Bryan, er sérveldismenn.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.