Skírnir - 01.08.1910, Page 169
Ritfregnir.
361'
1 ifa nú tvö, Sameiningin, nú á 24. árinu, og Áram'ót. Það hefir
unnið að sunnudagaskólahaldi víðs vegar í söfnuðunum og stofnun
ungmennafélaga. Það hefir gengist fyrir skólahaldi fyrir ísl. æsku-
menn og stofnað sjóð, sem á sínum tíma mætti nota til þess að
koma upp sjálfstæðum, ísl. kirkjufólagsskóla. Sá sjóður var í fyrra
orðinn nálægt 30 þús. krónur. Enn fremur er það nú að koma
sór upp heiðingjatrúboðs-sjóði, til þess að geta tekið verklegan þátt
í trúboði meðal heiðingja. Og fleira mætti aefna.
En, sem gefur að skiija, er saga kirkjufólagsins þennan aldar-
fjórðung í fylsta skilningi baráttusaga. Og sú barátta hefir oft og
tíðum verið hörð. Að fólagið hefir eflst og magnast þrátt fyrir
það, er vitanlega því að þakka fyrst og fremst, að það hefir í sinui
fáliðuðu starfsmannasveit átt einbeittum dugnaðarmönnum á að
skipa, mönnum, sem vissu hvað þeir vildu. Er þar fremur öllum
öðrum að nefna séra Jón Bjarnason.
Saga kirkjufélagsins er jafnframt saga séra Jóns Bjarnasonar.
Engum einstökum manni á kirkjufélag Yestur Islendinga jafnmikið
að þakka og honum. Sá sem þetta ritar hefir haft ýmislegt við-
trúmálaskoðanir þessa manns að athuga næstliðin 10 ár. Eg hika
ekki við að telja kristindómsskilning sóra Jóns gallaðan mjög og
guðfræðisskoðanir hans allar götur á eftir tímanum. Um eitt tíma-
skeið var séra Jón frjálslyndur maður í trúarskoðunum, en í hiuni
löngu baráttu hefir frjálslyndið smámsamau höggist af honum. Þetta
er skiljanlegt, þótt leitt só. Nú er sóra Jón allra manna íhalds-
samastur í trúmálum. En rauglátt væri í meira lagi yfir þessu að
gleyma því hvílíkt mikilmenni sóra Jón Bjarnason er, þrátt
fyrir þetta. Hefði hann ekki verið sá afburðamaður, sem hann
er, hefði kirkjulegi fólagsskapurinu þeirra Yestur íslendinga aldrei
orðið það sem hann er. Það er séra Jón, sem hefir mótað hann,
— skapað hann í sinni mynd og líkingu.
Minningarritið er að öllum ytra frágangi hið prýðilegasta, á
svellþykkum gljápappír með fallegu letri. Myndirnar í því svo
ágætlega prentaðar, sem bezt verður á kosið.
Einnig að efninu til er ritið hið vandaðasta. Fremst
eru í því »Minningar«, hugleiðingar út af 25 ára afmælinu eftir
séra Björn B. Jónsson, núverandi forseta kirkjufólagsins. Því næst
kemur langur ljóðabálkur eftir sóra Valdimar Briem, »Hátíðaljóð«,
sem að líkindum hafa verið notuð við sjálfa minningarhátíðina
vestra. Þá kemur saga kirkjufélagsins eða yfirlit yfir sögu þess
og starf eftir þá sóra Björn og Friðjón Friðriksson. Það er aðal-