Skírnir - 01.12.1915, Qupperneq 34
370
Nýtt landnám.
menn, sem lifðu á Skrælingja vísu. Hann þóttist þar
kenna landa sína og hugði, að það væru afkomendur Is-
lendinga, sem fiúið hefðu af Grænlandi og ætlað til Vín-
lands. Reynist þetta rétt, ber okkur að rækja við þá
frændsemi á drengilegan hátt og gefa þeim aftur alt, sem
þeir hafa mist.
Islenzkt landnám ætti einnig að hafa efnahagslegar
afleiðingar. Framleiðsla okkar er mjög einhliða, svo flest-
ar lífsnauðsynjar þarf að flytja og kaupa frá útlöndum.
Hve lítið sem úr þessu yrði bætt, væri það bót, sem gerðf
okkur ofurlítið sjálfstæðari. Þetta er sérstaklega tilflnn-
legt með vöru eins og kol, sem ekki er aðeins nauðsynja-
vara fyrir vaxandi fjölda af heimilum, heldur og vara,.
sem skip landsins geta ekki án verið. Vanti kol verða
öll fyrirtæki, sem rekin eru með gufuafli að hætta, skip-
og vélar ryðga, en fólkið sveltur vinnulaust. Þótt kol séu
fáanleg geta þau samt orðið svo dýr, að það sé til mikils
baga, og að menn verði að láta skip og verksmiðjur ganga
þrátt fyrir mikið tap, af því það yrði enn meira tap að
hætta rekstrinum. Almenningur fær auðvitað að una sér
í kuldanum, þegar kolin eru orðin »ókaupandi«. Þessi
styrjöld og reynsla undanfarandi ára ætti að hafa kent
mönnum nokkuð í þessu efni. Árið 1912 voru flutt inn
kol fyrir 2 milj. kr. Var það tæpum helmingi meira en
1909. Við höfum því þörf fyrir nýlendu, sem gæti birgt
okkur að kolum, svo kolavandræðin væru úr sögunni.
Island er fossaland. Omælanlegur er kraftur þess-
vatnsþunga, sem steypist frá hæðunum niður í djúpið. En
»not« fossanna eru »falin«. Það vantar fé og þekkingu
til að beizla þá. En þótt við legðum við fossana og lét-
um þá sjóða fyrir okkur matinn, hita og lýsa hýbýlin,-
plægja jörðina, sá, slá og raka, knýja fram járnbrautarlest-
ir, reiðar og sporvagna, þá er alt þetta lítil vik handa
slíkum bergrisum. Fullkominn starfa fáum við fyrst handa
fossunum þegar við förum að nota þá til að reka verk-
smiðjur, og þó ekki sé vert að gylla þessa atvinnugrein,.
er ekki heldur rétt að loka augunum fyrir þessum sann-