Skírnir - 01.04.1916, Side 94
206
Utan úr heimi.
[Skirnir
landi einhverjum landa sínum, sem skuldar Ameríkumanni, og get*
ur kaupandinn síðan greitt skuldina með því að senda v/xilinn til
Ameríku til innheimtu. Aftur á móti getur amerískur skuldheimtu-
maður gefið út vfxil á enskan skuldunaut og selt amerískum skuldu-
naut víxilinn. Eins getur sknldunautur gefið út víxil á sjálfan sig
og sent skuldheimtumanni sínum í öðru landi víxilinn, og hann
getur svo goldið öðrum sínar skuldir með v/xiinum. Notkun víxils-
ins hefir komið því til leiðar, að tvær milliiandagreiðslur eru orðnar
að tveimur innanlandsgreiðsium.
Vanalega er ekki heppilegt fyrir kaupmenn, sem skulda / út—
löndum, að þurfa að leita til annara kaupmanna, sem eiga inni í
útlöndum, til að kaupa víxia, þv/ að erfitt mundi vera að finna
v/xla, sem giltu jafnháa npphæð eins og kaupmaðurinn þyrfti með.
Menu nota því oftast ban.kana sem milliliði og kaupa v/xla hjá
þeim á banka / útiöndum, og aftur á móti kaupir bankinn v/xla á
útlendinga af þeim, sem eiga þá.
Meginþorri skulda þeirra, sem landið á að greiða útlöndum
innan skamms tíma, liggur því í bönkunum í víxlum, sem stund-
um eiga að greiðast við sýningu, stundum eftir ákveðinn tíma.
a. Fyrst athuga eg víxla greiðanlega við sýningu. Verð
það, sem kaupandi v/xils á útlönd verður að greiða, nefnist g a n g-
verð víxilsins. Ef skuldir landanna hvors til annars væru alt
af jafnháar, þ. e. a. s. jafnhá upphæð greiðanleg í sömu mynt á
sama tíma, þá mundi tilboð og eftirspurn eftir v/xlunum vera jafn-
mikil í báðum löndunum, og verðið yrði þá altaf jafnhátt, gang-
verð v/xilsins væri ákvæðisverð, hlutfallið milli myntfóta land-
anna. Akvæðisverð á einu pundi sterling er t. d. á Norðurlöndum
18 kr. 16 aur. En nú eru skuldirnar vanalega misjafnlega miklar
á ýmsum tímum, eftir því hvernig viðskiftin falla. Þegar heima-
landið á mikið inni hjá útlöndum, eru mikiar víxilupphæðir til sölu
á markaðinum, en eftirspurnin eftir víxlum á útlönd 1/tilj verðið á
útlendum v/xium fellur. Ef heimaiandið skuldar útlöndum mikið,
þá er mikil eftirspurn eftir v/xlum á útlönd, en tilboðið lítið, verð-
ið á þeim hækkar. Tilboð og eftirspurn ákveður því víxilgang-
verðið, en vanalega dæma bankarnir um, hvernig víxilmarkaðurinn
sé og hve hátt verðið eigi að vera. Orsökin til verðbreyting-
a n n a er fyrst og fremst skuldaviðskifti landsins við útlönd um
skamman tíma, greiðsluviðskiftin, og víxilgangverðið er því eÍDS
konar veðurmælir, sem sýnir ástand þeirra.
Að jafnaði er þó einuugis ákveðið svifrúm fyrir verðbreytingar