Skírnir - 01.04.1916, Page 112
224
Utan úr heimi.
[Skírnir
arstað i heimsverzlun sinni. Líklegast er því að peningamarkaöur-
inn muni að minsta kosti fara yfir á fleiri hendur en áður. Err
því lengur sem ófriðurinn stendur, þess meir safnast peningamark-
aðurinn að fullu og öllu í Bandaríkjunum.
Hlutlaus lönd hafa upp og ofan grætt of fjár í þessum ófriði.
Það er því mjög líklegt að ófriðarlöndin muni reyna að v e 11 a
nokkrum hluta af h e r k o s t n a ð i n u m yfir á h 1 u t-
1 a u s 1 ö n d, hvort beldur sem það nú verður með því að leggja
útflutningstolla á vörur, sem ófriðarlöndin ráða verðinu á (eins og
kolaútflutningstollurinn í Englandi 1901—03, sem goldinn var með
herkostnaðurinn í Búastríðinu), eða, eins og Þjóðverjar eru farnir
að gera nú, með því að hækka verð á vörum, sem hlutlaus lönd
eru neydd til að kaupa, eða á annan hátt. I sjálfu sér er ekki
nema náttúrlegt, að ófriðarþjóðunum finnist það ekki réttmætt, að
hlutlausar þjóðir græði á óförum sínum, en aftur á móti er ekki
von, að hlutlausar smáþjóðir, sem eru vanar því að stórþjóðirnar
græði á þeim, vilji fúslega sleppa tækifærinu að ná sér upp.
4. Eitt af málum þeim, sem mest eru rædd nú í heiminum,
er »ófriðurinn eftir ófriðin n«. Bæði Miðríkin og Banda-
menn ráðgera að hefja efnahagslegan ófrið gegn andstæðingunum,
þegar friður kemst á. Ætla þeir sér að gera viðskiftasambönd hvor
fyrir sig og verja þau með tollgörðum. Ef þetta verður, þá er
hætt við því að leikurinn fari að kárna fyrir hlutlausar þjóðir.
Það er því sem stendur ekki útlit fyrir, að alt verði sól og
sumar fyrir hlutlaus lönd þegar friður kemst á. Ofriðurinn virðist
hafa sýnt að sterkasta afl nútímans er öflugsamhögun (or-
ganisation). Að eins lönd sem hafa þenna mátt, mega þora að
t r e y s t a því, að þau sleppi nokkurnvegin óskert. Menn eiga að
vona alt hið bezta, en búast við þvi versta. Við megum því vona,
að samúðartilfinningin milli Norðurlanda, sem hefir aukist svo mik,
ið í þessum ófriði, megi bera þann ávöxt, að fram komi heildar.
samhögun, varnarsamband milli Norðurlanda í
þjóðhagsmálum og hermálum.
Kaupmannahöfn, í febrúarmánuði 1916.
Héðinn Valdimarsson.
H e i m i 1 d i r: Goschen : Foreign Exchange; Heckscher: Várld-
krigets Ekonomi; Jastrow: Geld und Kredit im Kriege; Cohn r
Okonomiske Tilstande; Wirtschaftliche Masznahmen aus Anlasze des
Krieges; Economist; Journ. of the Roy. Stat. Soc.; Finantstidender
Statistisk Aarbog o. fl.