Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 5
5
hornið nærr gaflinum. Menn sjá því, að þessi tótt er mjög svo lík
blóthúsinu að f»yrli bæði að stœrð og lögun; einungis er þessi lítið
eitt stœrri, og dyrnar á aðalhúsinu á þessari eru á endanum, þar
sem þær eru á hliðveggnum nærr öðrum enda á hinni. þessi lík-
ing milli hoftóttanna kemr og vel heim, þvíað báðar hafa verið
heimilishof. Eg hefi látið þá skoðun mína í ljós í Árb. i. hefti,
bls. 79., um blóthúsið að þ*yrli, að það hafi verið heimilishof, enn
alls eigi höfuðhof.
Hoftóttin í Ljárskógum er svo afarstór, að hvorug hinna hof-
tóttanna kemst þar í nokkurn samjöfnuð eða nokkur önnur tótt, er
eg hefi enn séð ; hún stendur beint fram undan bœnum í Ljárskóg-
um í túninu á nokkurn veginn sléttu, þó í nokkurum halla, upp og
ofan nær þvi í austr og vestr. Hún er á lengð út fyrir miðja veggi
88 fet; breidd á aðalhúsinu, þar sem það er breiðast, 51 fet, og
lengð þess 54 fet. Lengð á afhúsinu er 34 fet. Tóttin er skýr og
glegg og lagið reglulegt; allir veggir hennar ákaflega þykkir, og
einkannlega millumveggrinn, og engar dyr á honum. Veggirtótt-
arinnar eru hér um bil 3 fet á hæð að meðaltali. Afhúsið er mjög
fallega og reglulega hálfkringlótt fyrir endann, eins og myndin
sýnir, enn í neðra endann á aðalhúsinu er tóttin jafnbreiðust; horn-
in eru eigi hvöss, enn lítt kringlótt. Afhúsið er nokkuð mjórra enn
aðalhúsið, með því það hringast saman í endann, svo sem áðr er
sagt. (xloggvar dyr eru á miðjum gafli á afhúsinu beint á móti
millumveggnum. Á aðalhúsinu eru dyrnar ekki eins gloggvar, því
að þær hafa sigið meira saman; þó held eg, að fullyrða megi, að
þær sé út úr hliðveggnum nyrðra nærr endanum. Reyndar fann
eg eins ög glufu þvert í gegnum miðjan gaflinn á aðalhúsinu, enn
hvort hún er grafin af vatni, er staðið hefir í tóttinni og runnið
burtu haust og vor, og nú er orðin grasi vaxin aftr, verðr eigi sagt
með vissu; þó hygg eg heldr, að þar hafi verið dyr, enn jafnvel
minni enn hinar dyrnar á hliðinni, enda er það líklegt, að tvær dyr
hafi verið á aðalhúsinu, slíkri stórbyggingu1. í miðju afhúsinu varð
eg var við viðarkolaösku ; þar fann eg og á tveim stöðum leifar af
hrosstönnum. í aðalhúsinu fann eg lag af fjörusandi, einkum neð-
1) það er einkum þessi þykkvi millumveggr, með engum inngangi
eða dyrum á, sem sérstaklega vakti athygli mitt í fyrstunni á því, að þetta
myndi vera hoftóttir; svo og þessar dyr út úr afhúsinu annaðhvort á hlið-
inni fást við gaflinn eða þá út úr gaflinum sjálfum; auk þess dyrnar
á aðalhúsinu nærr öðrum enda, eins og Eyrbyggjasaga lýsir á hofinu í þórs-
nesi. Svo og fieira, sem mér sýndist einkennilegt við tóttir þessar, og lýsir
því, að þær hljóta að vera leifar af einhverju öðru enn venjulegum húsum,
peningshúsum eða geymsluhúsum, eins og reynslan hefir sýnt við rannsókn-
ina, þar sem nú tóttir þessar finnast einmitt á þeim stöðum, sem sögurn-
ar segja beinlínis að hof hafi verið og eg þá hefi fundið fleiri til saman-
burðar.