Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 57
57
Eg skal hér í fám orðum minnast á það helzta í landnámi
Hallsteins1 Atlasonar. Landnámab. segir bl. 301: „Hásteinn skaut
setstokkum fyrir borð at fornum sið; þeir kómu á Stálfjöru fyrir
Stokkseyri, en Hásteinn kom í Hásteinssund fyrir austan Stokks-
eyri, ok braut þar. Hásteinn nam land milli Rauðár ok Olvisár
upp til Fyllarlœkjar, ok Breiðamýri alla upp at Holtum, ok bjó á
Stjörnusteinum ok svá Ölver son hans eptir hann; þar heita nú
Ölvisstaðir“. Flóamannas. orðar þetta í öllu verulegu eins, bl. 123,
nema hún segir: „Setstokkarnir kómu fyrir dyr á Stálfjöru fram
frá Stokkseyri“, enn neðanmáls stendr : „En setstokkar hans kómu á
Stálfjöru, ok vóru hafðir fyrir dyribranda á Stokkseyri“. Hér er
því fyllra sagt frá. Stálklettr heitir enn klettasker fram undan
Stokkseyri. Hásteinssund heitir enn fyrir austan Stokkseyri; um
Rauðá skal síðar talað. Fyllarlœkr, eða Fúlilœkr, eins og Flóam. s.
nefnir hann, er nú týnt nafn, enn gæti hugsazt að vera sama sem
nú er kallað Stakkholtsós, hann er fyrir vestan Flóagafl-, eða þá
Fyllarlœkr er sama sem nú er kölluð Vöðlakelda ; hún liggr langs
fyrir ofan Breiðamýri, þar fyrir neðan bygðina; enn auðséð er það,
að þetta er efra takmarkið á landnámi Hallsteins. Breiðamýri hef-
ir þá heitið alt frá Olfusá, og austr að Ásum (sem þá vóru kallað-
ir Holt) og jafnvel austr undir J>jórsá. Nú er einkannlega kölluð
Breiðamýri að utanverðu, fyrir ofan Eyrarbakka. Stjörnusteinar
heita nú í íjörunni fyrir austan Stokkseyri. Baðstofuklettar heita
tvö flöt sker fram undan Stokkseyri, enn þau eru ekki í sögum
nefnd; þar á bœrinn Stokkseyri að hafa staðið áðr, enn var fluttr
hærra upp, þegar brimið tók að brjóta. Nú segir Landn. enn
fremr bl. 301, það er eftir að þeir brœðr Atli og Ölver höfðu skift
arfi eftir föður sinn : „Ölver hafði landnám allt fyrir utan (írímsá,
Stokkseyri ok Ásgautsstaði, en Atli átti allt milli Grímsár ok Rauð-
ár; hann bjó í Traðarholti“. þetta er alveg rétt í Landn.; enníFlóam.
s., bl. 123, er „Ölvusár“ misritað fyrir „Grímsár“2, þvíað ekki hefir
Atli getað haft land til Ölvusár, þegar Ölvir hafði ytra partinn af land-
námiföður síns, enn Atli einungis hinn eystra. Hún segir og: „hafði
Atli í móti“, það er á móts við ytra hlutann. J>etta er því rétt.
far að auki hafði Hallsteinn Atlason gefið Hallsteini mági sínum
nð minsta kosti nokkuð af ytra hlutanum af Eyrarbakka, Landn. bl.
302, og Flóam. s. bl. 123, svo að hvorugr þeirra brœðra gat átt alt
land út að Olfusá. Grímsá þekkist nú ekki; hún er horfin; nafnið
er ekki til lengr, enn það er víst, að hún hefir verið einhvers staðar á
1) Eg hefi nefnt hann hér í ritgerð þessari Hallstein, af því Flóamanna-
saga kallar hann svo, sjá hér að framan bls. 47 neðanmáls.
2) þessi ritvilla hefir einhvern tíma komizt inn í textann hjá afskrifur-
unum af óaðgætni.
4 b