Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Qupperneq 6
6
antil; hefir hann auðsjáanlega verið borinn þangað neðan úr fjöru.
|>ar ofan til fann eg viðarkolaösku. Gólfið í tóttinni rannsak.aði eg
mjög vandlega og sannfœrðist eg um, að hún hefir aldrei verið
nokkurs konar peningshús eða rétt, eða heyhús, eða neitt þess kon-
ar, þvíað hvergi fundust þar nein þess háttar merki af taði eða
gólfskán, eða undanlás undan heyi. Hið sama gildir um tóttina á
Rútsstöðum.
J>etta hof i Ljárskógum er reyndar hvergi nefnt í sögum, enn
það er svo víða í sögunum að höfuðhofin eru ekki nefnd eða hvar
þau hafi verið, og þó vita menn með vissu, að þrjú vóru höfuðhof
í hverju þingi, eins og eg hefi áðr tekið fram. f»ar á móti hefir
nafnið haldizt, að tóttin er kölluð hoftótt og hefir verið kölluð svo
í 400 ár eða meir, og eru sérstakar vissar sagnir fyrir því, að þetta
nafn er enginn tilbúningr síðari tíma. þ>essar sagnir hafa haldizt í
hinni svo nefndu Ljárskógaœtt, sem bjó mann fram af manni í Ljár-
skógum í 300 ár eða meir. Jón Bergþórsson í Ljárskógum, sem
eg talaði við í sumar er leið, og sem enn lifir, sagði mér þetta;
hann er maðr greindr og minnugr og er nú 85 ára gamall, og
hefir verið þar alla sína ævi. Bergþór faðir hans kom að Ljárskóg-
1788 og var þar til dauðadags. Hann keypti jörðina af síðasta
ættmanni þessarar Ljárskógaættar, sem þar hafði búið, maðr eftir
mann, og hann sagði Bergþóri, að hver hefði sagt öðrum, að þessi
tótt væri gamalt hof1.
J>egar nú hoftóttin í Ljárskógum er borin saman við lýsing-
una á Kjalarnesshofinu, finst hér svo mikil líking á milli, að öll
aðaleinkenni verða nálega hin sömu: fyrst þessi afar-mikla stœrð,
og þó einkum breiddin ; hlutfall breiddar og lengðar er hér um
bil hið sama á báðum hofunum, nema hvað Kjalarnesshofið er enn
stœrra, nl. 100 fóta á lengð og 60 fóta á breidd. Afhúsið í Ljár-
1) Jón Pétrsson, forseti 1 yfirdóminum, hefir gert svo vel að gefa
mér ættartölu þessarar Ljárskógaættar, og er hún þannig :
nArnór Finnsson, sýslumaðr, bjó í Ljárskógum 14 85 og ef til vill
fyrr, og átti jörð þá; hans dóttir
Guðrún átti Loft í Ljárskógum, son Guðlaugs Loftssonar; Guðlaugr var
fœddr hér um 1450. Son Guðrúnar og Lofts
Arnór í.Ljárskógum, sýslumaðr í Strandasýslu; hans son
Ásgeir í Ljárskógum; hans son
Jón í Ljárskógum ; hans son
Asgeir í Ljárskógum; af börnum hans lifðu sum fram yfir 1800, og seldu
þau Ljárskóga*. Af einhverju þeirra keypti Bergþór Ljár-
skóga, sem áðr er sagt. Af þessu sést, að þessar sagnir eru
nú orðnar rétt við 400 ára gamlar.
Hoftóttin í Ljárskógum hefir og verið mörgum kunn, því að Jón Berg-
þórsson sagði mér, að allir ferðamenn, sem nokkuð hafa unnað fornfrœði og
komið að Ljárskógum, hafi skoðað tóttina og mælt hana, og þótt hún all-
merkileg, t. d. Steingrímr byskup o. fl.