Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Side 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Side 14
14 má og, að skilveggrinn upp af stallinum hafi einungis verið úr þili. í hverju hofi eða í afhúsinu vóru tveir stallar, annar, sem goðin stóðu á, og hinn, sem þar stóð frammi fyrir, sem síðar skal gerr sagt. Að goð stóðu á stalli, er víða tekið fram. Hkr. bls. 184: Olafr konungr hóf upp refði gullbúit, er hann hafði í hendi, ok laust þ>ór, svá at hann féll af stallinum. Síðan hljópu at konungs- menn ok skýfðu öllum goðunum af stöllunum". Eins er í Fms., 2. b., bls. 45, og bls. 108 : Tók jarl þá silfr mikit og lagði á fót- stallinn fyrir hana“ ; enn fremr bls. 154: „oftlega greip hann til þeirra ok svipti þeim af stöllunumLl; enn fremr bls. 163: „hann gékk inn ok skýfði goðin af stöllunum“. í Flateyarb. 1. b., bls. 401, segir og, að Ólafr konungr „hjó niðr goðin af stöllumini'''. Fms., 10. b. Ól. Trs. bls. 255 : „Kappinn Alpin sat á stóli virði- lega búinn með hinum dýrstum pellum oc gulli oc gimsteinum, því lícast sem scurðgoð væri sett d stallu. í Harðars. segir, þegar Grím- kell goði kom í hofið að Ölfusvatni, ísl. s., 2. b., Kh. 1847, bl. 59: „þ>á vóru goðin í busli miklu og burtbúningi af stnllunum'í. jpetta alt er þá sönnun fyrir þeim stalli, er goðin stóðu á. Um stallinn, sem var frammi fyrir goðunum, er glögt sagt í Eyrb.; sjá Arb., 1. h., bls. 83: „Innar af hofinnu var hús í þá líking sem nú er sönghús í kirkjum, og stóð þar stalli á miðju gólfinu sem altari“. Nákvæm lýsing á þessum stalli er og í Melabók, Ln. bls. 336: „þ>essi goð stóðu á stalli eða hávum bekk; frammi fyrir þar stóð stalli með miklum hagleik ok þiljaðr ofan með járni; þar skyldi á vera eldr, sá er aldri sloknaði; þat kölluðu þeir vigðan eld; á þeim stalli skyldi og standa bolli mjök af kopar; þar skyldi í láta blóð þat alt1, sem kœmi af fé því er þar var til gefit“. í þessum tveim hofum, sem siðast hafa verið rannsökuð, hefir enginn verulegr vottr fundizt þess stalls, er stóð frammi fyrir goðunum; við því er heldr ekki að búast. J>ar sem segir, að þessi stallr, er stóð á miðju gólf- inu, hafi verið gerðr „með miklum hagleik“, er auðvitað, að hann mun ekki hafa verið hlaðinn úr grjóti á sama hátt sem hinn, eða á sama hátt sem venjulega er hlaðinn grjótstöpull, þvíað á þann hátt verðr engum verulegum hagleik komið við. Auk þess hefir hér hvergi fundizt enn, svo eg viti, vottr þess, að forn- menn hafi viðhaft í þann tíð höggvið grjót og límt, eins og tekið er fram í Árbókinni í fyrra. þ>að er enn fremr tekið fram, að þessi stallr var „þiljaðr ofan með járni“, sem auðvitað er að gert hefir verið til þess að á því skyldi brenna vígði eldrinn. Hefði stallrinn verið úr höggnu grjóti sléttu og samanfeldu, þá hefði sannlega ekki þurft að þilja hann ofan með járni. Eigi mun heldr stallrinn 1) Bg hefi getið þess í Árb., 1. h., bls. 82-83, að alt blóð fórnardýranna hefir ekki getað verið látið í hlautbollann, enda^er það Melabók ein, sem segir »blóð þat alt«, enn eigi Eyrbyggjas. Sjá Árb. 1. h., bls. 83.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.