Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Qupperneq 88
88
þýft i kring' um^flötina, og tóttin því verið sléttuð, og nokkuð í
þá líking að löguninni til, sem hún hafði verið upprunalega, enn
sléttað nokkuð stœrra-svæði. í túninu fyrir utan og neðan bœinn
var tótt kringlótt, sem kölluð var hoftótt. Yfir hana hefir nú verið
sléttað ekki alls fyrir löngu, svo að engin sjást merki. Nokkuru
neðar í túninu er lítill uppmjór hóll eða stór þúfa, sem nú er kall-
aðr þorgerðarhóll. þar í á þorgerðr móðir þeirra Höskuldar og
Rúts að vera lögð, og vel má vera, að svo sé ; eg hafði jafnvel
ætlað, að kanna hólinn, þegar eg væri búinn á Rútstöðum; enn
það fórst fyrir vegna tímaleysis. Fyrir utan bœinn á Höskulds-
stöðum er lítill lœkr, sem rennr i mjög djúpum farvegi, og nær
túnið út að honum. Upp frá lœknum er auðsjáanlega sú „tún-
brekka^, sem Laxd. s. nefnir, bls. 36, þar sem Melkorka sat og
talaði við Olaf son sinn um morgun, þegar Höskuldr kom að þeim.
í brekkunni er fallegt, og sést ekki þangað frá bœnum. Á Hösk-
uldsstöðum fékk eg gamalt vígsluvatnsker úr leir, með rósum, um
200 ára gamalt eða meir.
Áðr enn eg skilst hér við, verð eg að minnast á Melkorku-
staði. það nafn er nú týnt. Sumir hafa haldið, að þeir hafi verið
þar sem nú er Saurastekkrinn sunnan til við Laxá, skamt upp frá
sjónum (sjá Safn til s. ísl. 2. b., bls. 569), og að Melkorka sé heygð
í hólnum, þar fyrir neðan, sem er nær niðr á sjóarbakka, og nú er
kallaðr Melkorkulióll. þetta hvorugt getr átt sér stað, þar sem
sagan segir með ljósum orðum, að Höskuldr hafi fengið Melkorku
bú „U])pi í Laxárdal11 Laxd. s. 36. þ>etta „uppi“ er engin ritvilla
fyrir „niðr“, eins og þar er getið til1, enda myndi öðruvís tekið til
orða, hefði þetta verið nær niðr við sjó; J>orbjörn skrjúpr hefði
þá ekki heldr, fremr öðrum, sem nær bjuggu, orðið til þess, að
veita umsjá um bú Melkorku, Laxd. s., bls. 68, þar sem hann bjó
langt fram í Laxárdal á Lambastöðum, sem er bœr fyrir framan
Goddastaði, enn hitt miklu nær Höskuldsstöðum. Líka sést það
á öllum anda sögunnar um þetta efni, að Melkorka bjó nálægt
þorbirni, og þar að auki á því, að Höskuldr segir við Melkorku,
þegar hann fékk Olafi fóstr á Goddastöðum: „en þú mátt hitta
hann ávalt. er þú vilt“, bls. 52. þannig myndi ekki sagt, ef langt
hefði verið í milli. Melkorkustaðir hafa því verið einhvers staðar
frammi í Laxárdal, ekki langt frá Lambastöðum fyrir sunnan Laxá.
þar sem nú sagan segir „þar er nú auðn“, bls. 36, geta tóttirn-
ar verið orðnar nokkuð ógreinilegar, hafi annars ekki verið eitthvað
bygt ofan í þær, t. d. stekkr eða byrgi, eða þá, að þar hafi verið
1) þar segir líka, að víða megi rekja spor tilmisritana í Laxdœla s.,
«svo sem um Kjartanssteininn í Svínadal«. Ekki hefieg orðið var við mikið
af þess konar. Með Kjartansteininn er engin ritvilla, eins og eg hefi
sýnt hér að framan.