Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Qupperneq 11
hafa legið á snið niðr með syðra veggnum. fvermál tóttar-
innar er 33 fet. Eg kannaði tóttina að innan með stálstaf minum,
og virtist mér góífið vera mjög jafnt, og buldi víða hvar í steinum.
Rétt við kringlóttu tóttina er hliðveggr af annari tótt, og nokkuð
af öðru gaflaðinu, meira sést ekki; það er líkast til að hinn hluti
tóttarinnar sé á einhvern hátt eyddr eða rifinn upp hinnar vegna,
því svo sýnist jafnvel, sem kringlótta tóttin sé bygð ofan á hornið
á þessari, og þetta gerir hana tortryggilega, að hún sé eins göm-
ul, enda er hún mjög ólík öðrum tóttum á Valseyri, fyrst að lag-
inu til, og svo hversu hún er niðr grafin og hleðslan að innanverðu
há. Rétt fyrir sunnan var önnur tótt, 49 fet á lengd, og 17 fet
á breidd; dyrnar sáust greinilega, og eru út úr hinum nyrðra hlið-
vegg miðjum ; veggirnir eru mjög blásnir, svo að viða sást fyrir
ytri og innri hleðslu úr grjóti, enn kringum tóttina eru eggsléttar
grundir, eins og sumstaðar á eyrinni, þar sem skriðan hefir ekki
grandað. Svo sem 50 föðmum vestar sést glögglega fyrir annari
tótt, sem snýr auðsjáanlega í austr og vestr eins og hinar áðr
töldu; lengd virtist vera um 4ofet. þ>essi tótt er gersamlegablásin,
enn sést þó fyrir neðsta undirstöðugrjótinu; í miðri tóttinni var þó
nokkur grasrót svo sem yfir gólfinu; rétt þar fyrir vestan vottar
fyrir tótt, enn verðr þó eigi sagt með vissu, því þar er mjög blás-
ið. Nokkra faðma fyrir vestan er tótt, sem snýr eins og hinar;
hún er blásin, enn grjóthleðslurnar neðstu sjást nokkurn veginn
greinilega, og eftir miðju tóttarinnar er nokkur grassvörðr; lengd
nser 41 fet, breidd rúm 18 fet; dyr sáust ekki með vissu. Litlu
sunnar og neðar var enn mjög blásin tótt, sem snýr eins oghinar;
lengd 36 fet, aðþví er mælt varð, breidd ió1/^ fet, því syðrikampr
tóttarinnar sést greinilega. |>á var komið að þeirri stóru skriðu,
sem fellr niðr miðja eyrina úr gilinu að ofan; hefir sú skriða bæði
rifið sig niðr og um rótað öllum jarðvegi, og er fallin alt að sjó
niðr. Fjórtán föðmum neðar eðr nær sjónum hefir auðsjáanlega
verið tótt, er snýr eins og hinar; fyrir nyrðri hliðvegg sést nokk-
urn veginn, enn hitt alt orðið ógreinilegt; ummál hennar verðr ei
sagt með vissu. þar niðr undan rétt niðr við sjó er lítil upphækkun
á eyrinni; hefir þar auðsjáanlega staðið ákaflega löng tótt, eðr tvær,
hvor við endann á annari, því sem vottr af gaflaði virðist vera 1
miðju tóttarinnar; ytri endi tóttarinnar er af brotinn af skriðunni,
enn að neðan af sjónum, enn greinilega sést þó fyrir nokkru af
veggnum, er að sjónum snýr, og þess utan er og grasi vaxin laut
eftir syðra parti tóttarinnar; þessi tótt er önnur sú neðsta á eyrinni
og er hana að brjóta upp, sem fyr segir. Nokkru sunnar hefir
verið önnur tótt, enn er að mestu afbrotin af sjónum, og eru leif-
ar hennar niðr í flœðarmáli. Nokkru austar og ofar á eyrinni, nær
10 fet frá sjávarbakkanum, sést greinilegr vottr fyrir öðru mann-