Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Blaðsíða 64

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Blaðsíða 64
64 fyrir Slettanes, ok síðan inn til Arnarfjarðar; bar hann vestr at Laugabólshlíð, ok gekk þar á land, ok hittir smalamann. Hann spyrr, hverr hann væri. En hann segir slíkt til sem honum sýndiz. Grísli fær sér hall einn, ok kastaði út í skerit, er lá fyrir landi, ok reyri til sjálfr at forvitnaz um, ok fundu þar hallinn sem niðr hafði komit. Gísli bað þar bóndason eptir gera, þá er hann kvæmi heim —„ok mun hann þá vita þikkjaz, hverr maðrinn verit hefir“—því at þetta var enkis manns kast annars, því at hann var betr búinn at iþróttum enn flestir menn aðrir. Gísli stígr nú á skip, ok rœr út fyrir Langanes, ok inn á fjörð þann, er Geirþjófsfjörðr heitir; hann gengr af Arnarfirði; býst hann þar um“. Gfslasker heitir sker á Arnarfirði fram undan Brimnesi, sem gengr fram úr Lauga- bólshlíð ; þetta er skerklettr litill um sig, sem fer í kaf, að minsta kosti um stórstraumsflóð ; það er auðséð, að sagan meinar þetta sker, því ekkert annað er hér til; allri þessari ferð er nú rétt lýst samkvæmt örnefnunum, og þarf eg ekki að taka það meir fram, þar sem eg hefi áðr bæði lýst þessum örnefnum og landslagi hér. Enn alt fyrir það getr þetta sker með engu móti verið sker það, sem Gísli kastaði út í; fyrsta ástœðan er sú, að þetta Gislasker liggr svo langt frá landi, það er */4 viku eða meir, að enginn maðr nokkurn tíma hefir getað kastað steini frá landi út í það ; engar eru hér heldr grynningar, að annað sker hefði getað verið til, sem nú væri horfið ; alstaðar er hér aðdýpi mikið, og sjómaðr einn hefir sagt mér, sem er upp alinn f Arnarfirði, að t. d. fyrir norðan Gíslasker sé um 80 faðma djúp. Onnur ástœða er sú, að sker þetta er viku sjáfar eða meir af réttri leið inn Arnarfjörð, frá Sléttanesi fyrir sunnan Langanes inn í Geirþjófsfjörð. Mér sýnist og, að söguritaranum hafi sjálfum jafnvel sýnzt þetta ferða- lag Gísla óeðlilegt, þar sem hann segir: „bar hann vestr at Lauga- bólshlíð11; hann hefir vitað, að menn myndi sjá, að þetta var ekki rétt leið. Hér er því ein af þessum tröllauknu alþýðusögum kom- in inn í söguna á einhvern hátt í afskriftunum, sem svo mikið er til af um Gísla Súrsson þar vestra1. Gildi sögunnar yfir höfuð getr þetta ekki rýrt í minsta máta, þar sem alt annað í henni hefir reynzt rétt, að því af ransóknunum verðr séð ; þar að auki stendr sú rétta og eðlilega frásögn í hinu handritinu, sem nú skal sýnt verða, og þarf þá ekki að heimta meira. Mns. bl. 38: „Ok 1) Vorar góðu sögur eru verk hinna mentuðu manna þeirrar tíðar, enn ekki alþýðunnar; þær eru saman settar í höfðingja ættunum, og þeirra for- feður vóru og oft sjálfir við riðnir söguviðburðina, enn þar hjá hafa og verið til alþýðusagnir; það má sýna fram á það um ýmsar sögur, í hvaða ættum þær hljóta að hafa verið fyrst saman settar, og þar á meðal er Gísla Súrs- sonar s. ein; enn það yrði oflangt mál hér að tala um þetta efni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.