Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Blaðsíða 34
34
forkell Alviðrukappi enn auðgi var son þeirra“. Alviðra er að
norðanverðu við fjörðinn, litlu utar enn á móti Haukadal. Út á
Skaga, nær yzt, gengr fram í sjóinn nes allmikið, sem nú heitir
Hj'allatangi. þetta er auðsjáanlega hið forna Hjallanes; bœrinn
Stapi stendr þar inn og upp frá ; nokkru utar í hlíðinni heitir enn
í dag þúfa\ hún er dálítið fell eða uppmjó hæð, sem stendr neðar
enn miðhlíðis; er hún nú höfð fyrir aðal fiskimið, því að á Skaga
er veiðistöð1. Að þetta er Hjallanes, sést og af landnáminu að
norðanverðu, Landn. bl. 145: „Ingjaldr Brúnason nam Ingjaldssand
milli Hjallaness ok l)fœru“. Enn Skagi heitir út á milli Ingjalds-
sands og Dýrafjarðar. Hið innra takmark af landnámi þ>órðar
Víkingssonar er Jarðfallsgil, sem heitir svo enn í dag; það er
mikið gil, sem gengr niðr úr hlíðinni íyrir innan Gemlufall (þann
bœ hefi eg nefnt bl, 9 hér að framan). pórðr hefir því átt mikinn
hlut af hinni nyrðri Strönd í Dýrafirði. Landn. segir bl. 145 neð-
anmáls, að Dýri hafi gefið honum land. Eg hefi þá minzt á öll
hin helztu landnám í Dýrafirði.
Siðan skildi eg við Haukadal og fór inn að þfingeyri seint
um kveldið, kom þar kl. 12.
Mánudaginn 24. júlí var eg kyrr á þingeyri til að koma í
lag dagbók minni, því eg átti margt enn ógert.
þriðjudaginn 25. júlí mældi eg búðatóttirnar á þingeyri.
Efsta og insta tóttin upp undan verzlunarstaðnum er litil og óglögg.
Hún er 20 fet á lengd, og snýr út og inn; dyr hafa verið á gafl-
inum, og eru þó óglöggar. Rétt þar fyrir neðan er önnur tótt,
sem snýr eins; hún er með þykkum veggjum, og er 58 fet á lengd
og 22 fet á breidd; hún er með útbyggingu við hliðvegginn, er
snýr að fjallinu; dyr hafa verið á hliðarvegginum, er snýr að sjón-
um, enn verða ekki frekar ákveðnar, því fleiri skörð erú í vegg-
inn; innri partr tóttarinnar er allr hærri. Önnur tótt sýnist hafa
verið hlaðin þvers um við efri endann á þessari tótt; millumveggr-
inn er hinn sami fyrir báðar; dyrnar snúa að fjallinu, út úr endan-
um. Rétt fyrir utan er önnur tótt, sem snýr út og inn; hún er 40
fet á lengd, og 21 fet á breidd; dyrnar eru eigi glöggvar, enn
munu hafa verið á neðri hliðvegg, því innan i tóttina miðja hefir
verið hlaðin önnur tótt, sem er auðsjáanlega yngri; lítil útbygging
sýnist hafa verið við innra horn neðri hliðveggjar. þ>ar fyrir ofan
er önnur tótt, sem snýr eins; hún er 39 fet á lengd og 19 fet á
breidd. þessi tótt er lægri, og að því leyti óreglulegri, svo dyrn-
ar sjást ekki glögt. Beint út undan er tótt\ hún er stœrri enn hin,
snýr eins, og er 46 fet á lengd, og 23 fet á breidd; dyr sýnast
hafa verið úr efra hliðvegg nær ytra horni. J>ar fyrir ofan kemr
1) Um Hjallatanga og púfu hefir Bunólfr Magnús Jónsson sagt mér.