Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Síða 12

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Síða 12
12 Yirki; það er nær ferhyrnt að lögun, veggir blásnir ofan f grjót og mjög svo lágir, enn i miðju tóttarinnar er breiðr grassvörðr; þvermál þessa mannvirkis er 44 fet á annan veg, enn 42 fet á hinn veginn. Alstaðar er mælt út fyrir miðja veggi, eða gert fyrir því, sem þeir kunna að hafa fallið út; þannig mæli eg vanalega. Oll þessi mannvirki á Valseyri eru í austasta klofanum á aðalskriðunni, austanvert á eyrinni; tala allra tóttanna, er eg fann þar á þessu svæði, er fimtán, þegar önnur mesta tóttin niðr við sjóinn, sem gaflaðið var i miðjunni á, er talin sem tvær tóttir, og svo þessi eina, sem var óglögg, er talin með. Allar tóttirnar á Valseyri eru mjög svo lágar eða niðr soknar, og einar af þeim fornlegustu tóttum, sem eg hefi nokkurstaðar séð, að frátekinni þessari kringl- óttu tótt; fornlega lögun hafa þær og, langar í samanburði við breiddina og dyr á öðrum hliðvegg, að því er séð varð; það ein- kenni höfðu þær allar sem svo voru heilar, að það varð séð, að þær sneru út og inn á eyrinni, þ. e. önnur hliðin að sjónum enn hin að hlíðinni, sem fyr segir. Vestan til á miðri eyrinni beint niðr undan dalverpinu, er gilið rennr úr, er djúpr farvegr, grasi vaxinn, er niðr að sjónum dregr, sem er auðsjáanlega hinn gamli farvegr, er gilið hefir áðr runnið, enn nú fellr það í alt öðrum farveg í grjótskriðunni, austan til á eyr- inni. Valseyri er stórt svæði á báða vegu, sem fyr segir, hún er ekki flöt, heldr hallar henni mjög niðr til sjóar og út af henni til beggja hliða; er hún því sem hvelfð eða hválmynduð, og á þann hátt verðr það skiljanlegt sem mns. segir bl. 11 : „ganga nú út í Eyrarhvolsodda ok rísta þar upp úr jörðu jarðarmen“ o. s. frv., og bls. 9 „Hvalseyrarþings“. Ms, hefr bls. 93: „ganga síðan út ór búðinne á eyraroddann“, og „Valseyrarþings11, bls. 92. þ>að mun hafa verið utanhalt fram á eyrinni er þeir skáru upp jarðarmenið, þar hefir helzt verið afsíðis, og vottar ekki þar fyrir mannvirkjum, að því er séð verði; eins og eyrin lítr nú út, gengr hún ekki fram í neinn verulegan odda, enn líklegt er, að hún hafi verið meira oddmynduð áðr, og að sjórinn hafi smá sorfið framan af, þar sem tóttirnar, sem fremst hafa staðið, eru að brotna af, sem áðr er sýnt. Á neðanverðri eyrinni með fram sjónum eru víða þeir uppruna- legu grasfletir, enn þó eru skriðurnar sumstaðar fallnar til sjóar; vestan til á eyrinni eru hér og hvar smá vfðir eða lyng runnar. Of- an til vestast á eyrinni nær hlíðinni sést fyrir löngum garði; þar fyrir neðan sést fyrir gömlum tóttum; f þeim er nú stekkrinn frá innri Lambadal; hér hefr þvf verið eitthvert býli eða kot einhvern tíma. þegar tóttirnar á Valseyri eru bornar saman við þær tóttir, sem eg hefi rannsakað á öðrum þingstöðum, verðr það ljóst, að þær eru þem sem líkastar að allri lögun og ásigkomulagi, nema

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.