Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 45

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 45
45 fyrst verð eg að lýsa þeim stöðum í Geirþjófsfirði, er eg fann, svo að betra yfirlit verði yfir þá í heild sinni. þ>egar sögurnar fyrst nefna kleifarnar og fylgsnin, þá segir ms. bl. 125 : „Ok eptir þat var hann (Gísli) í Geirþjófsfirði, stund- um á bœ þeim, er Auðr réð fyrir, en stundum var hann i fylsni því, er hann hafði gert sér ; þat var fyrir norðan ána ; en annat fylsni átti hann fyrir sunnan ána við kleifarnar; ok var hann þar ýmist“. þ>etta er í alla staði rétt orðað, samkvæmt þvi, sem það reyndist við ransóknirnar; fylgsnið er beinlínis fyrir sunnan ána upp við kleifarnar, enn hitt fyrir norðan ána, enn miklu lengra frá henni, sjá pl. II. mynd 1. Mns. bl. 40 segir: „Eptír þetta er hann stundum í Geirþjófsfirðe á bœ Auðar, enn stundum í fylsn- um, fyrir sunnan ána, er hann hafðe gjört sér; annat fylsni átte hann við kleifarnar, suðr frá garðe, ok var hann ýmist“. þ>essi staðr sýnist vera eitthvað aflagaðr, því ekki er hér nærri eins rétt að orði komizt; það getr reyndar verið, að Gísli hafi átt fleiri fylgsni fyrir sunnan ána, enn þá er það fyrir norðan ána ekki nefnt. Suðr frá garði (Auðarbœ) eru strangt tekið engar kleifar, og ekkert fylgsni; suðr að ánni eru að eins fáir faðmar og slétt eyri, enn meininguna má þó að vísu skilja, þegar maðr veit það sanna áðr, því ekki er langt upp undir kleifarnar að fylgsninu og það er nærfelt í landsuðr; báðar sögurnar kalla það og síðar suðr; rétt er að kalla það til suðrs, sem er fyrir sunnan á; með átt- irnar vóru fornmenn stundum ekki svo nákvæmir, eins og eg hefi áðr oft sýnt. Enn betr hefði farið að miða þetta við ána eins og Ms. gerir, heldr enn við bœinn.1 Hút, bl. 256, er, eins og vant er, sem líkust Mns.; þó skilr hana einungis í þvi, að hún hefir: „enn Stundum í Fylgsni fyri Sunnan Ána“. Fyrst hún nefnir ekki nema eitt fylgsni fyrir sunnan ána, eða „fylgsni" fyrir „fylgsnum“, fyrir utan það, sem er við kleifarnar, mætti geta til, að þetta væri réttara enn í Mns., og að í báðum þessum útg. ætti að standa: „fylgsni fyrir norðan ána“, nefnil. að sunnan væri ritvilla fyrir norðan, og þá að einnig ætti að standa: „suðr frá ánni“, í stað- inn fyrir : „suðr frá garðili. f>á yrði þetta samkvæmt Ms., sem •Icemst hér svo vel að orði sem bezt má vera. Upp með ánni að sunnanverðu vóru kleifarnar, nær í land- suðr frá bœnum, sem fyr segir, og blasa þær við; £>etta er snar- 1) þetta dœmi sýnir meðal annars, hvað valt það getr stundum verið, að byggja einungis á orðfœri eða lestrarmáta, þó skinnhandrit sé, enn hafa annaðhvort als ekki komið á staðinn, sem um er að rœða, eða þá hafa ekki nœga þekkingu á honum; skinnh. geta stundum líka verið orðin aflöguð í afskriftum. þó pappírsh. sé, kann það að vera komið af góðri og gamalli skinnbók, og getr verið nákvæmlega afskrifað. Mns. er þó ágætt handr. í heild sinni, þó smágallar kunni að finnast, eins og komið getr fyrir í vor- um vönduðustu ritum jafnvel.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.