Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 47

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 47
47 Einhamar heitir svo enn í dag ; hann er einstakr klettahamar að sunnanverðu í dalnum, út og upp undir hlíðinni frá kleifunum að sjá; stendr hann í miklum halla og snýr nær út og inn; sér framan á hann og þó nokkuð á ská frá kleifunum, og þess vegna gengr hann nokkuð í sig, þaðan til að sjá, sbr. pl. III. mynd 2. Alt er þar þakið þykkum skógi umhverfis hamarinn; að ofan úr hlíð- inni er slétt fram á hann, og vaxið hrísi alt fram á brúnina, enn að framan er hamarinn berg, og snarbratt niðr frá berginu, nema á einum stað; skógrinn nær mjög svo upp undir hamarinn, nema lausagrjót smátt er alt niðr hallann; tvær smáurðir eru þó á einum stað hér fyrir neðan, og nokkuð langt frá berginu ; þær eru mjög niðrsoknar, og standa skógarhríslur upp úr þeim ; það er því auð- séð á öllu þessu, að þeir steinar eru ekki fallnir úr berginu síðan á tíma sögunnar; hamarinn er því að öllu óumbreyttr síðan á þeirri tíð. Fram úr Einhamri gengr stórt klettanef eða klettastandr með sléttu bergi, alveg þverhnýptu að framan; stendr þessi klettr langt fram úr hamrinum; að innanverðu eða til vinstri handar, gengr upp gjá eða einstigi, sem liggr í bug; þar má fara upp á klettastand- inn, og getr einn maðr farið senn; af standinum má komast upp á hamarinn, sjá pl. II. mynd 3. (Einhamar eins og hann litr út að framan, svo sem 50 faðma neðan úr skóginum). Einstigið eða gjáin verðr ekki sýnd, því hún felst í skugganum vinstra meginn við bergið. Hér framan í hamrinum upp á þessum klettastandi varðist nú Gísli, því þar er það einasta og öruggasta vígi, sem hér getr verið um að rœða; þetta verðr ljóst, þegar frásögnin i báðum sög- unum er borin saman við hvernig hér hagar til, sem enn mun síðar gert. Einhamar er 19 faðmar á lengd, þannig mældr, að eg lagði málið yfir hamarinn frá enda til enda ; óhœgra var að mæla hann að neðan frá berginu, bæði vegna hallans, og svo þess, að klettr- inn skagar svo langt fram, sem fyr segir. Hæðin á berginu er um 12 ál., enn hamarinn sýnist þó hærri til að sjá, vegna hallans niðr frá berginu. Kálund segir að Einhamar sé 30 ál. á lengd. £>egar hann er að lýsa hamrinum, stendr bl. 560: „Gagnvart túninu, fyrir sunnan ána, nokkuð hátt upp í hlíðinni, er klettr, sem stendr fram, sem nú er kallaðr Einhamar; hann er um 30 ál. á lengd og 10 ál. hár. Klettrinn skiftist í 3—4 srnáhamra, og er framan til og til hliðanna svo hár og brattr, að einungis á einstöku stað er mögu- legt að klifra nokkuð upp, til að ná með spjótalögum að þeim, sem stendr upp á klettinum11. f>að er ekki hœgt að sjá, hvað hér er meint; myndin sýnir, og það sem áðr er sagt, að alstaðar er hœgt að komast upp á hamarinn, nema einungis að framan, að frá teknum þessum eina stað ; eg fór upp á hamarinn hvar sem eg vildi, á allar þrjár hliðar, og svo upp eftir gjánni, enn annarstaðar að framan kemst enginn maðr. Hvað lengdinni á hamrinum við-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.