Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 58

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 58
58 taka upp allan kaflann orðrétt úr sögunni, því hún er samhljóða í aðalefninu, enn einungis sýna þá staði, er hún segir réttara og enn nákvæmara frá, að því er við kemr ransókninni eink- annlega. J>egar þau Gísli gengu frá bœnum til fylgsnisins undir kleif- arnar suðr, og hann risti rúnirnar á keflið, þá segir bl. 154 : „ok falla niðr spænirnir um leiðina“; hún bœtir við „um leiðina“; þetta gerir nú lítið til, enn vera má, að þeim Eyólfi hafi og orðið þetta til leiðarvísis, ásamt döggslóðinni, og því sé þetta einkann- lega tekið fram. Bl. 155 segir: „£>eir Eyólfr ganga nú upp at kleifunum11. þ>etta er réttast til orða tekið, því lengra komust þeir ekki fyrst um sinn enn upp að berginu, enn um þau Gísla segir hún áðr, að þau gengu „upp á kleifarnar, þar sem þeim þótti bezt vígit“. Um njósnar-Helga segir og bl. 156 : „Ok er hann ræðz upp í kleifarnar“, þ. e. upp í skarðið, því ekki hefir Gísli beðið eftir því, að hann kæmist alveg upp. þ>að verðr ekki séð af ms„ hvort Eyólfr komst upp „annarstaðar“. pað er því einungis ms., sem gerir mun á þessu tvennu : „upp á kleifarnar“ og „upp í kleifina11. J>etta er og allra nákvæmast, og sýnir mikinn kunn- ugleika söguritarans á staðnum. Ms. bœtir því við um Einhamar: „pat er gott vígi“. þ*etta er og rétt sagt, samkvæmt lýsingunni á hamrinum hér að framan. Enn fremr segir bl. 157: „Maðr er nefndr Sveinn, er nú réð fyrstr upp í hamarimi at honum“. þetta er enn nákvæmast að orði komizt, því hér er talað um skorina eða gjána upp í klettastandinn. Nú þegar Gísli hafði kveðið vís- una, þá segir bl. 157—158: „þ>essi var hin sízta vísa hans. Ok þegar jafnskjótt er hann hafði kveðit vísuna, hleypr hann ofan fyrir skorina ok keyrir sverðit fyrir brjóst f>órði, frænda Eyólfs, ok fær hann þegar bana“ o. s. fr. J>etta er lang réttast að orði komizt, þar sem Gísli gat hvergi komizt niðr af klettastandinum, nema ofan skorina ; mns. hefir blátt áfram „ofan af hamrinum“, sem fyr er sagt. Enn fremr segir ms.: „f>eir drógu hann síðan ofan á jöfnu, ok tóku af honum sverðit, ok götva hann þar í grœntóinne“. Mns. hefir „f grjótinu“, sem fyr segir. þ>að er að vísu ekki allhœgt að segja með vissu, hvort réttara kann að vera, enn þar sem báðar sögurnar segja, að þeir drógu hann ofan, þ. e. frá berginu, þar sem Gfsli hefir legið fallinn, og þar sem lausa- grjótið er, þá sýnist mér, að það sem ms. segir muni réttara ; því einmitt á þessum stað, niðr frá hamrinum að innanverðu, og litlu innar enn niðr frá skorinni, er lítill grasblettr, og sá eini, sem þar er til; fyrir utan hann er sú litla urð, sem eg hefi áðr nefnt, með niðrsokknum steinum og skógarhríslum upp úr; enn bæði fyrir innan og neðan tekr við skógrinn ; þessi grasblettr er lítill um- máls, og rétt kallaðr græntó ; hér kemr því enn fram sá nákvæm-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.