Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Side 63

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Side 63
63 um og í sambandi við önnur landnám. Landn. s. bl. 140 : „Án rauðfeldr, son Griir.s loðinkinna or Hrafnistu, ok Helgu, dóttur Ánar bogsveigis, varð missáttr við Harald konung enn hárfagra, ok fór því or landi í vestrvíking ; hann herjaði á írland, ok fékk Grelaðar, dóttur Bjartmars jarls ; þau fóru til íslands ok kvomu f Arnarfjörð vetri síðar enn Örn. Án var enn fyrsta vetr í DufailS- dal; þar þótti Grelöðu illa ilmat or jörðu. Örn spurði til Há- mundar heljarskinns, frænda síns, norðr í Eyjafirði, ok fýstist hann þangat; því seldi hann Áni rauðfeld lönd öll miili Langanes ok Stapa ; Án gjörði bú á Eyri, þar þótti Grelöðu hunangs iimr or grasi. Dufan var leysingi Ánar; hann bjó eptir i Dufansdal. Bjartmarr var son Ánar“ o. s. fr. Dufansdalr gengr út úr vestr- hlíð Forsfjarðar; þar er einn bœr, sem hefir sama nafn. Langanes, sem eg hefi áðr nefnt, er þá takmarkið á landnámi þessu að sunnanverðu við Arnarfjörð, eða því landi, sem Án keypti af Erni. Fyrir utan Stapadal, sem er utarlega í Arnarfirði að norðanverðu, er klettr eða hamar við sjóinn, sem enn heitir Stapi; þetta er þvi takmarkið á landi þessu að norðan, sjá hér að framan bl. 32, land- nám Eiriks í Keldudal. Sléttanes heitir enn í dag yzt í Arnarfirði að norðan, þar sem fer að beygjast inn í fjörðinn. Um landnám í Arnarfirði að sunnanverðu og hið ytra segir Landn. s. bl. 139: Ketill ilbreiðr, son jporbjarnar tálkna, nam Dali alla frá Kópanesi til Dufansdals11. Kópanes heitir enn yzti tanginn milli Arnarfjarð- ar og Tálknafjarðar; þar sem segir „Dali alla“, þá eru meintir allir dalir að sunnanverðu í Arnarfirði, sem eru í þessu takmarki. Yztir eru tveir dalir, sem heita Verdalir ; þeir eru óbygðir og er þar veiðistöð; þá er Selárdalr, svo Fifustaðadalr, svo Austmanna- dalr, svo Bakkadalr, svo Hringsdalr, svo Hvestudalr, svo Auffi- hringsdalr, svo Bíldudalr, svo Otrardalr, og Dufansdalr inst; þá er komið að landnámi Geirþjófs, sem fyr segir. Eg hefi þá talað um öll landnám í Arnarfirði, samkvæmt Landn. s., og er öll hennar lýsing rétt, og öll eða flest örnefni hafa sama nafn enn f dag. að eina, sem enn er eftir viðvíkjandi ransókninni f Gísla s. hér vestra, er að tala um það svokallaða (xíslasker; í hvorugri sögunni er nú reyndar nokkurt Gislasker nefnt, enn einungis talað um sker það, sem Gísli kastaði út í; þetta er það eina verulega atriði, sem sögunum ber ekki saman um, og er hér því nauðsyn- legt að taka fram alt, sem báðar sögurnar segja. Ms. bl. 123—124 segir, þegar Gísli flutti sig alfarinn úr Haukadal inn í Geirþjófs- fjörð : „Hann (Gísli) selr landit J>orkeli Eiríkssyni ór Keldudal, ok tók fyrir lausafé þat er honum var mjök innan handar. Hann fær sér skip, ok flytr fé sitt ok búferli brott þaðan. Kona hans ferr með honum. þá fara þau út eptir Dýrafirði, ok svá vestr

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.