Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Síða 65
65
er þeir (Börkr) voro á burtu, fór Gísli heim, ok býrr þegar ferð
sína, ok færr sér skip, ok flytr þangat á mikinn fjárhlut, ok ferr
Auðr kona hans með honum, ok Guðríðr fóstra hans, ok út til
Hxísaness, ok koma þar við land. Gísli geingr þar upp til bæjar-
ins, ok hittir þar mann, ok spyrr sá, hverr hann væri; enn Gísli
sagðe til slikt er honum sýndist, enn ekke þat sem var. Gísli
tekr upp stein einn, ok kastar út í hólm þann er þar var fyrir
lande, ok bað þar bóndason eptir gjöra, þá er hann kæmi heim,
ok kvað hann þá vita mundu, hverr maðrenn þar hefðe komit.
Enn þat var einskis manns at inna, ok kom þar þá enn þat fram,
ath Gísli var betr at íþróttum búinn enn flestir menn aðrir. Eptir
þat geingr hann á bátinn, ok rœr út yfir nesit, ok yfir Arnarfjörð,
ok yfir fjörð þann, er geingr inn af Arnarfirðe, er heitir Geir-
þjófsfjörðr, ok býst hann þar um, ok gjörir þar alhýse, ok er þar
um vetrinn". Hér þarf ekki mikilla skýringa við, því auðsætt er,
að þessi hólmr eða sker, sem Gísli kastaði út í, er í Dýrafirði,
þar sem fyrst er um það talað, og svo rær Gísli út fyrir nesið, og
síðan inn á Arnarfjörð. í opinu á Dýrafirði að sunnanverðu yzt
er nes, sem veit nær í norðr ; það er nú kallað Hafnarnes; þetta
er nes það, sem Gísli lenti við, og sagan kallar Húsanes; nafnið
hefir þannig breyzt, og getr það verið eðlilegt; þar er bœr einn,
sem heitir Höfn, og er hér veiðistöð ; þetta á vel við söguna, þar
sem hún segir, að Gísli gekk upp til bœjarins, enn ms. talar um
engan bœ, þar sem Gísli er látinn koma við land, því hann er þar
enginn til. Fram undan þessu Hafnarnesi er sker rúma ioofaðma
frá landi, sem heitir Selsker; það er nokkuð flatt ofan og nokkuð
stórt um sig, og mun sagan því kalla það hólm. Við innri enda
skersins var áðr skerklettr, sem hét Gríslanaggr; nú er orðið brot-
ið ofan af honum, svo hann sést ekki nema um lágsjáað. Eg
hefi nú reyndar ekki komið hér og séð þetta sjálfr; þannig stóð
á því, að þegar eg var í Dýrafirði, hugði eg að það mundi það
rétta, sem ms. segir, og að skerið, sem Gisli kastaði út i, mundi
vera þetta Gíslasker 1 Arnarfirði; enn þegar þar kom, og eg sá
þetta með eigin augum, sannfœrðist eg um það rétta. Eg hefi
því síðan leitað mér allra upplýsinga, sem eg hefi getað, um sker
þetta í Dýrafirði, og við margan talað um það ; eg skal því setja
hér orðrétt þær greinilegustu skýrslur, sem eg hefi fengið um
þetta efni1 : „Ef enginn kann að hafa frœtt yðr um Selskerið, þá
1) þessar skýrslur eru frá Bjarna Jónssyni í Haukadal; eg þekki hann
vel, hann er greindr maðr og réttorðr; hann sagði mér og bezt til allra
örnefna í Haukadal; hafði hann og áðr enn eg fór vestr gefið mér skriflega
skýrslu af ýmsu þar.
5