Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 3
5
sonur Þorkels »var allsherjargoði er kristni kom a Island* *1), en alls-
herjargoðar hafa þeir verið kallaðir einmitt af því að þeir helguðu
allsherjarþingið.
í sama riti er og sögn2) um að Þormóður allsherjargoði hafi
sagt með hvaða orðum og þingmörkum þeir »langfeðgar hans« (þ.
e. Þorkell faðir hans og Þorsteinn afi hans) hafi helgað alþingi, en
orðin eru annaðhvort alls ekki tilgreind3) eða þau verður að draga
út úr eiðformála svohljóðandi: »Ek vinn eið at baugi, lögeið; hjálpi
mér svá Freyr ók Njörðr ók ás hinn almáttki, sem ek mun þessa sök
sœkja (eða verja, — vitni — eða vœtti — eða kviðu bera, eða dóm
dœma) ok öll lögmœt skil af hendi leysa, þau er undir mik koma meðan
ek er á þessu þingi, sem ek veit réttast ok sannast ok helzt at lögum«.
Samkvæmt þessari sögu og hinu fyrgreinda ákvæði í 56. kap. þingskþ.
hefir allsherjargoðinn og átt að »kveða á þingmörk, hver eru«, í al-
þingishelguninni, en nú er hvergi að finna í Grágás hver þingmörkin
voru á alþingisstaðnum; verða menn að geta sér til um þau eftir
því hversu þar hagar landslagi. Má helzt til geta, að þau hafi verið
þessi: Gjábakki hinn hærri að vestan, Flosagjá (og nú sú gjáin,
sem kallast Nikulásargjá) að austan og framhald hennar suður í
Þingvallavatn (gjársprunga fram með túninu á Þingvöllum, að austan-
verðu við það), Þingvallavatn að sunnan, Kastalarnir (sem nú kall-
ast) að norðan. Verður það svæði aflangur og rétthyrndur ferhyrn-
ingur, um 100,000 □ faðmar að stærð. Eftir sama (56.) kap. í
þingskþ. er dálítil ástæða til að ætla, að allsherjargoðinn hafi átt
að helga alþingi »enn fyrsta aftan er þeir (goðarnir) koma til þings«,
þ. e. fimtudagsaftaninn, en að svo hafi í rauninni verið ákveðið eða
að sú hafi verið venjan, sjáum vér nú hvergi í Grágás, og það virð-
ist jafnvel nokkuð óeðlilegt að alþingishelgunin hafi átt að fara frain
fimtudagsaftan, þar sem goðunum var ekki gert skylt að koma til
þings fyr en rétt fyrir náttmál það kvöld, og lögsögumaður var
ekki skyldur til að vera kominn fyr en næsta morgun. Hafi al-
þingishelgunin farið fram fyr en föstudagsmorgun rná ætla að hún
hafi farið fram seint á fimtudags/cröM/ð / fornmenn töldu miðaftan
um kl. 6, aftan þá frá kl. 3 (nóni)4) til kl. 9 (eftir nútíðartali). — Ef
til vill hefir goðunum einmitt þess vegna meðal annars verið gert
skylt að vera komnir á þingstaðinn fyrir sólarlagið á fimtudags-
kvöldið, að hin hátíðlega alþingishelgun fór fram er sólin var að
*) Lnb. útg. F. J. Hb. kap. 8—10.
*) Yiðauki við Melab. e. y., ísl.s. I. 335. bls.
s) Svo leit Guðbr. Vigf. á, sbr. Orig. isl. I. 328, 5.
*) Sbr. þó eykt í registrinu aftan við Skálholtsbók 602. bls.