Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Side 16
18
konungr sendi vt til íslands klucku til kirkju þeirrar er hinn heilage
Ólafr konungr sende uidin til og adra kluckuna, og su kirkia var
sett aa Þingvelle þar sem alþinge er sett. Þuilikar meniar hafa
menn hans aa Islande«. . . . Hvenær kirkja þessi hefir verið reist
á Þingvelli verður varla ákveðið nákvæmlega. Það var árið 1017
að Ólafur konungur hafði send orð um kristinn rétt hér á landi1),
og má því ætla að hann hafi sent kirkjuviðinn næsta sumar og
kirkjan þá líklega reist 1018 eða næstu sumur. Hér við er að at-
huga þó, að i Hungrvöku, 8. kap.8), er sagt að brotið hafi árið 1118
»kirkju á Þingvelli, þá er Haraldr konúngr Sigurðarson hafði við
til fengit« og í Kristni sögu, 14. kap.3), er sömuleiðis sagt að þetta
sama ár, »þá braut kirkju á Þingvelli, þá er Haraldr konúngr Sig-
urðarsun hafði látið höggva viðinn til«. Báðar þessar sagnir eru
því að eins samrýmanlegar, að konungarnir hafi báðir sent við til
kirkju þessarar; því að hitt er mjög ólíklegt, að kirkja sú, er bygð
hefir verið úr við þeim, sem Ólafur konungur sendi, hafi verið fall-
in eða ofan tekin fyrir dauða Haralds konungs. Það er að vísu
varla berandi brygður á hina fornu frásögn í Hungrvöku, en frá-
sögurnar í sögum þeirra Ólafs og Haralds konunga eru þó í alla
staði sennilegar. Hafi kirkjan verið reist 1018 og hana brotiðlll8,
þá hefir hún orðið réttra hundrað ára, og er það engan veginn ólík-
legt. Hvar kirkja þessi hafi staðið er ekki auðið að segja með vissu.
Sig. Guðmundsson segir í Alþst.4) það almenna sögn, að tvær kirkjur
hafi í fornöld verið á Þingvelli, þingmanna kirkja og búanda kirkja,
og að þingmanna kirkja hafi staðið þar sem kirkjan á Þingvelli
stendur nú, en búanda kirkja hafi verið í kirkjugarðinum, þar sem
hann er nú. Gömul sögn er til um það,5) að Alexius Pálsson, er
síðar var ábóti Viðeyjarklausturs, hafi flutt kirkjuna á Þingvelli,
er hann var prestur þar um 1514, úr kirkjugarðinum og þangað
sem hún er nú (eða var á 17. og 18. öld og hefir víst verið siðan);
‘) Heimskr. II. b., 87. bls. Maurer áleit, Island 83. bls., 18—19, að orðsending
Ólafs kgs. viðv. kristnihaldinu hefði verið gerð 1016, en hann áleit samt (Isl. 119)
eins og Munoh (D. n. F. Hist. I. 2., 696. bls.) og Jón Sigurðsson (D. I. nr. 16 og 21)
sð samningurinn milli Ólafs kgs. og íslendinga um rétt íslendinga í Noregi hafi
verið gerður um 1022. Er oss ekki kunnugt um að neinir hafi haldið að sá samn-
ingur væri gerður um 1016(—18), né heldur hitt, að nokkrir hafi haldið að íslend-
ingar hafi árin 1020—21(—22) „fært lög sín ok sett kristinn rétt, eftir því sem orð
hafði til send Ólafr konungr11, svo sem stendur í Andvara XXXV., 41. bls.
’) Bisk. s. I., 71. bls.
’) Ibid., 30. bls.; sbr. og ísl. s. I. (Lnb.), 329. bls.
4) Bls. 52-55.
6) Sjá Kirkjus. Finns bisk. Jónssonar, IV. b., 91.—92. bls.