Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 32
34
lögsögumanns næstu daga á undan hafa að líkindum oft og einatt
vaknað hjá mönnum hugmyndir um lagabreytingar, nýmæli og ný
lög ýms, sem svo má búast við að þeir hafi borið undir lögréttuna
þennan dag.
Svo sem tekið var fram áður viðv. fyrra sunnudegi í þingi, hefir
eðlilega verið sungin messa á alþingi, í þingmannakirkjunni, einnig
þennan síðara sunnudag í þingi eftir kristnitöku, og má ætla að
fjöldi þingheyjenda hafi verið þar viðstaddur. Eins og áður
var sagt, og hver getur séð með því að líta í almanakið, voru fleiri
messudagar en sunnudagarnir í þingtímanum, — þótt ekki sé þeir
helgir haldnir nú1). Jónsmessa, Pétursmessa og Páls, Þing-Maríu-
messa (Vitjunardagur Maríu) og Seljumannamessa gátu allar orðið á
þingtímanum samkvæmt tímatalinu eftir gamla (júlíanska) stíl, er þá
tíðkaði8t.
Næstu tvo daga, mánudaginn og þriöjudaginn i 12. viku
sumars, hina síðari í þingi, vitum vér ekki til að neitt sé ákveðið
um i Grágás. Hafi þingið enn staðið yflr þá tvo daga, má ætla að
lögsögumaður hafl haft uppsögn, lögrétta ef til vill stundum verið
rudd (haft fundi), og fimtardómur (og máske fjórðungsdómar) farið
út, ef þess var krafist af einhverjum, til þess að dæma um sakir er
gerst höfðu þá dagana. Hafl þinglausnir verið næsta miðvikudag
má ætla að margir hafi búist til brottferðar daginn áður.
Þiuglausnadaginn sjálfan, sem eins og áður er sagt hefir
verið miðvikudagurinn í 12. viku sumars (og síðasti dagur þeirrar
sumarviku), er ákveðið að lögréttan skuli út fara, eins og í framan-
greindu ákvæði i lögrþ. var tekið fram; með tilliti til eftirfylgjandi
ákvæðis um hvað lögsögumaður skyldi gera þennan sama dag, má
ætla að starfsemi lögréttunnar þennan dag hafi verið lík og tekið
var fram hér á undan viðv. störfum hennar sunnudaginn síðara í
þingi. En viðvíkjandi gjörðum lögsögumanns þennan dag er þetta
ákvæði í lögsmþ.2): »Lögsogo maðr a up at segia sycno leyfi oll
at lögbergi sva at meire lutr manna se þar ef þvi vm nair oc
misseris tal. oc sva þat ef menn scolo eoma fýR til alþingis eN x.
vicor ero af sumre. oc tina imbro daga halld. oc fösto iganga. oc
scal hann þetta allt mæla at þinglavsnom* *. Af ýmsum ákvæðum
er fyr voru tilgreind viðvíkjandi endur-útfærslu dóma til að dæma
um mál, er risið höfðu á þinginu3), má ráða að þessi uppsaga lög-
•) Sbr. Krist. 1. þ., 13,—14. kap., Kb. I., 30.-32. bls.
*) Kb. I., 209, bls.
') Sjá Kb. I., 83 og 177, og Sthb. 353.